Vinnumálastofnun
NÝTT NORRÆNT VEFRIT UM ATVINNULÍF
Fjármálakreppan hefur valdið því að mörkin milli þess að vera í starfi og að vera atvinnulaus eru orðin óskýr. Sumir geta setið auðum höndum á fullum launum á meðan aðrir „eru atvinnulausir“ í félagslegri þjónustu. Um þetta er fjallað í nýju fréttabréfi Atvinnulífs á Norðurlöndum.
Fylgst verður vel með atvinnulífsmálum í fréttaritinu Atvinnulíf á Norðurlöndum sem nú verður rafrænt fréttabréf og vefrit í stað þess að vera prentmiðill.
Fréttabréfið mun koma út oftar, þ.e. að minnsta kosti tíu sinnum á ári í stað fjórum sinnum áður. Á www.arbeidslivinorden.org munu þeir sem vinna með vinnumarkaðsmál, vinnuumhverfi og vinnurétt geta fundið frétti, umræður og skoðanir um helstu mál.
Norrænir straumar og stefnur verða í brennidepli en einnig verður fylgst vel með fréttum frá ESB. Norræna velferðarlíkanið er enn meir til umfjöllunar, eftir að fjármálakreppan hófst.
Atvinnulíf á Norðurlöndum kemur út á þremur norrænum tungumálum. Norska atvinnurannsóknastofnunin gefur ritið út, fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. Með haustinu verður ritið einnig gefið út á finnsku. Jafnframt verður það gefið út á ensku fjórum sinnum á ári undir nafninu Nordic Labour Journal.
Í fyrsta tölublaði vefritsins verður fjallað um fjármálakreppuna og hvernig hún hefur búið til nýja gerð af atvinnuleysi, og hvernig þeir sem enn eru í starfi eru neyddir til að taka á sig launalækkanir. Norrænu ríkin hafa orðið misilla fyrir barðinu á kreppunni, þar sem atvinnuleysi er þrisvar sinnum meira í Finnlandi, á Íslandi og í Svíþjóð en í Danmörku og Noregi.
Eldri pappírsútgáfur af fréttaritinum Atvinnulíf á Norðurlöndum og Nordic Labour Journal verða einnig settar á vefinn. Áskrift og lestur á fréttaritinu eru ókeypis.
Leita
Samskipti
Opið virka daga
frá 9:00 - 15:00.
Ath. að á sumum þjónustuskrifstofum
er opnunartími á föstudögum
frá 9:00 - 12:00.
Helstu símanúmer:
* Þjónustuskrifstofan
á Engjateig 11:
Sími 515 4850
Bréfasími 588 2587
* Greiðslustofa atvinnu-
leysistrygginga á
Skagaströnd:
582 4900
* Fæðingarorlofssjóður
á Hvammstanga:
582 4840
* Aðalskrifstofa Hafnarhúsinu
v/Tryggvagötu:
515 4800
>> Nánar <<
Faxnúmer í
Hafnarhúsinu:
511 2520
Póstur til Vinnumálastofnunar
Mynd
















