Ungt fólk til athafna
Ungt fólk til athafna - fyrir unga fólkið og framtíðina!
Með átakinu Ungt fólk til athafna sem nýlega var ýtt úr vör af félags- og tryggingamálaráðuneytinu er markmiðið að aldrei skuli líða meira en þrír mánuðir frá því að einstaklingur á aldrinum 18 - 24 ára verður atvinnulaus þar til honum er boðið starf, námstækifæri, starfsþjálfun eða þáttaka í öðrum verðugum verkefnum. Nánar um átakið.
Erlendar rannsóknir hafa sýnt að ungt fólk er sérstaklega viðkvæmt fyrir afleiðingum langtímaatvinnuleysis og þykir sýnt að afleiðingar þess að hefja starfsferilinn í atvinnuleysi geti haft áhrif starfsævina á enda. Með átakinu er verið að gefa ungum atvinnuleitendum möguleika á að koma sér af stað í námi, öðlast starfsréttindi eða kynnast nýjum starfsvettvangi, sér að kostnaðarlausu.
Vinnumálastofnun sér um framkvæmd átaksins og er það í höndum þjónustuskrifstofa Vinnumálastofnunar á landsbyggðinni en í Reykjavík hefur opnað ný þjónustuskrifstofa á Suðurlandsbraut 22.
Ferlið
Á þjónustuskrifstofuna í Reykjavík koma daglega um 80 ungmenni á kynningarfund og fá leiðsögn og ráðgjöf um þá fjölbreyttu möguleika sem þeim stendur nú til boða. Að loknum kynningarfundi skrá atvinnuleitendur sig í það úrræði sem þeim lýst best á. Í þessu átaki er ekkert val um óvirkni, ef einstaklingar skrá sig ekki í úrræði veldur það bótamissi. Með þáttöku í úrræðnum halda einstaklingarnir bótunum og verða um leið virkir þáttakendur í samfélaginu. Sjá nánar.
Úrræðin og samstarfsaðilar
Fjölmörg úrræði standa til boða og ættu því allir að finna sér eitthvað við sitt hæfi. Má meðal annars nefna að nýlega hófu 40 ungmenni nám í Fjölbrautarskólanum í Breiðholti þar sem ásóknin er mest í listnám og iðngreinar. Sex hópar hafa tekið þátt í vinsælu sjálfseflingarnámskeiði í Hinu húsinu sem gengur undir nafninu Vítamín. Þá er mikil ásókn í ferðaþjónustunám hjá Mími - símenntun og Grunnmenntaskólinn er sömuleiðis vinsæll og námsleiðin Aftur í nám fyrir lesblinda. Um áttatíu ungmenni eru þáttakendur á vinnuvélanámskeiði og 25 - 30 ungmenni hefja nám á næstu dögum í MK í hótel- þjónustu og barþjónanámi. Mikill áhugi er líka á sjálfsboðaliðastörfum hjá Rauða krossi Íslands og Íþrótta- og ólympíusambandi Íslands.
31.8.2010Atvinnuleysistryggingar fyrir ágúst4.8.2010Átak gegn langtímaatvinnuleysi4.8.2010Atvinnueysistryggingar í júlí |
Leita
Samskipti
Ungt fólk til athafna
Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512 4730
Faxnúmer 578 7910
Hafa samband
Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00
Ath. lokað er í hádeginu
milli kl 12:00 - 13.00
mánudaga til fimmtudaga
Mynd







