Beint á leiðarkerfi vefsins

Ungt fólk til athafna

15.2.2010

Hópar þegar farnir af stað í úrræði verkefnisins Ungt fólk til athafna

Verkefnið Ungt fólk til athafna hefur fengið góðar viðtökur hjá ungmennum síðan skristofan opnaði á Suðurlandsbraut 22. Um 300 - 400 ungmenni hafa fengið kynningu á fjölmörgum úrræðum og þurfa þau í lok fundar/viðtals velja a.m.k. þrjú úrræði sem vekja áhuga þeirra.

Þegar eru farnir af stað fimm hópar í sjálfstyrkingarnámskeiðið Vítamín í samstarfi við Hitt húsið, námskeiðið hefur vakið mikla lukku. Tveir hópar eru farnir af stað í Grunnmenntaskólann sem er námsleið hjá Mími símenntun og er kominn nægur fjöldi til að fara af stað með þriðja hópinn. 40 ungmenni byrja mánudaginn 15. febrúar í Fjölbraut í Breiðholti í nýrri námsleið samkv. nýrri námsskrá framhaldsskóla. Þetta er námsleið þar sem lagt er upp úr nýjum og óhefðbundnum leiðum með áherslu á list- og verkgreinar, sjálfstyrkingu og fl. Hér skapast ný tækifæri fyrir þau ungmenni sem ekki hafa fengið þörfum sínum mætt í framhaldsskólum til þessa. Mikill áhugi er á vinnuvélanámskeiðum og eru tveir hópar farnir af stað í þau námskeið. Einnig eru að fara af stað námskeið í lesblindu, færni í ferðaþjónustu, tölvunámskeið, hótel- og barþjónanám, ásamt fleirum. Um 50 ungmenni hafa lýst áhuga á sjálfboðaliðastörfum hjá Rauða krossinum, Íþróttasambandi Íslands og há Veraldarvinum.

Sömu sögu er að segja af öllu landinu og fær verkefnið afar góðar viðtökur bæði hjá ungum atvinnuleitendum og þeim sem leitað er til vegna starfsins. 

Lesa nánar um verkefnið



Samskipti

Ungt fólk til athafna

Suðurlandsbraut 22
108 Reykjavík
Sími 512 4730
Faxnúmer 578 7910
Hafa samband

Opið er alla virka daga
frá kl. 09:00 - 15:00,
nema föstudaga
frá kl. 09:00 - 12:00

Ath. lokað er í hádeginu 
milli
kl 12:00 - 13.00 
mánudaga til fimmtudaga


Slóð:

Fréttir

Stjórnborð

Forsíða vefsins Stækka letur Minnka letur Senda þessa síðu Prenta þessa síðu Veftré Hamur fyrir sjónskerta

Mynd