Act og núvitund: Áfram og upp (e. Acceptance and Commitment Therapy. ACT)

Hópmeðferð/námskeið fyrir þá sem hafa gengið í gegnum álag af ýmsu tagi eða langvinn veikindi. Á námskeiðinu er unnið er með ACT  (Sáttar og atferlismeðferð) og núvitund í átt að sátt í daglegu lífi, þrátt fyrir veikindi, áskoranir eða álag. Unnið er með gildi og markmið í átt að bættum lífsgæðum og meiri virkni. Kenndar eru ýmsar útgáfur af núvitundaræfingum en núvitund er einn af hornsteinum ACT. 
Kennt á þriðjudögum og föstudögum frá kl. 12:00-14:00 í 8 skipti.
Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið nordurland.eystra@vmst.is.

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Gróska eftir sextugt

Á námskeiðinu verður fjallað um almenna heilsueflingu, grunnþætti heilbrigðis m.a. kynheilbrigði og geðrækt. Námskeið sem eflir grósku og velsæld til að mæta áskorunum og streitu efri ára. Kynnt verða verkfæri sem hægt er að nýta í vinnu með áföll og álag í lífinu í þeim tilgangi að létta á neikvæðum áhrifum og horfa fram á veginn. Áhersla er á núvitund, framtíðarsýn, umræður um bjargráð, hugarfar og heilbrigði. 
Tímalengd 1,5-2 klst. hvert skipti. Alls 8 skipti. 1x í viku.
Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið nordurland.eystra@vmst.is.

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Leiðin áfram – uppbygging í kjölfar streitu

Á námskeiðinu er lögð áhersla á sjálfsþekkingu til að takast á við streitu og uppbyggingu í kjölfar álags eða veikinda. Námskeiðið hentar þeim sem vilja kynnast sjálfum sér betur, efla styrkleika sína, þekkja streituvalda og átta sig betur á eigin mörkum. Þátttakendur koma sér upp verkfæratösku sem gagnast við áskoranir í starfi og daglegu lífi. 
Kennt á þriðjudögum og fimmtudögum frá kl. 10:00-12:00 í 11 skipti.
Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið nordurland.eystra@vmst.is.

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Mín líðan – Sálfræðiþjónusta á netinu

Mín líðan býður upp á alhliða sálfræðiþjónustu á netinu í gegnum vefslóðina: minlidan.is  Boðið er upp á staðlaða sálfræðimeðferð á netinu, veitta af löggildum sálfræðingum, þar sem öll samskipti fara fram í gegnum skrifaðan texta. Einnig er boðið upp á fjarviðtöl við sálfræðinga, sem eru myndfundir þar sem skjólstæðingur og sálfræðingur eiga samskipti augliti til auglitis í gegnum netið. Í fjarviðtölum er hægt að fá aðstoð við hvers konar sálrænum vanda.

Hægt er að svara nokkrum einföldum spurningum til að sjá hvaða meðferð hentar þér. https://www.minlidan.is/spurningalisti/   

Viltu vita meira? 

Hafðu samband við okkur á netfangið nordurland.eystra@vmst.is

Virkið fyrir 18-25 ára

Í haust ætlum við að bjóða upp á námskeið með fjölbreyttri dagskrá þar sem áherslan er lögð á fyrirlestra og stutt námskeið sem styrkir atvinnuleit og eykur tækifæri út á vinnumarkaðinn. Einnig munum við kynna okkur fyrirtæki og ýmsar stofnanir sem opna möguleika á menntun og þekkingu.
Á dagskránni í haust verður meðal annars: Skyndihjálparnámskeið, kynningar t.d. frá Nordjobb, Grófinni, framhaldskólum og fleira einnig verða í boði kynningar frá fyrirtækjum á svæðinu og starfsemi þeirra.
Námskeiðið hefst í október og stendur fram í desember. 
Námskeiðið fer fram i Virkinu Þriðjudaga, miðvikudaga og fimmtudaga Frá kl 10-12. 
Virkið er til húsa í Íþróttahöll Akureyrar.

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið nordurland.eystra@vmst.is.

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni