pageicon

Námskeið á Vesturlandi

Vorönn 2024

Þú getur aukið möguleika þína á vinnumarkaði með því að sækja ýmis atvinnutengd námskeið meðan þú ert í leit að starfi.  Ef þú ert skráður atvinnuleitandi hjá Vinnumálastofnun Vesturlandi og með staðfestan rétt til greiðslu atvinnuleysisbóta standa ákveðin atvinnutengd námskeið þér til boða endurgjaldslaust á vegum Vinnumálastofnunar Vesturlandi.

Við minnum á að hægt er að sækja um námsstyrk vegna annarra atvinnutengdra námskeiða sem haldinn eru á vegum ýmissa aðila annarra en Vinnumálastofnunar.  Umsóknareyðublað fyrir námsstyrk má finna hér. Mikilvægt er að skila inn umsókn til Vinnumálastofnunar Vesturlandi tímanlega áður en námskeiðið hefst svo fyrir liggi í byrjun námskeiðs hvort umsóknin hefur verið samþykkt eða ekki.

Að uppfylltum ákveðnum skilyrðum er einnig hægt að óska eftir að gera námssamning vegna lengra náms samhliða atvinnuleitinni.  Nánari upplýsingar eru á vef Vinnumálastofnunar og hjá ráðgjöfum.

Þjónusta ráðgjafa stendur einnig til boða endurgjaldslaust fyrir atvinnuleitendur sem vilja fá aðstoð við atvinnuleitina almennt, setja sér markmið og stefnu í leit að starfi og skoða möguleika á námskeiðum og námi samhliða atvinnuleitinni.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni