Sjálfstyrkingarnámskeið


ADHD á kvennamáli Leiðarvísir að einfaldara lífi

  1. feb - 3 mars 2024.


Á námskeiðinu leggjum við grunn að bættu sjálfstrausti og jákvæðri sjálfsmynd með aðferðum ADHD markþjálfunar.

Við ræðum starfsemi ADHD heilans.  Hvernig hann hefur áhrif á getu þína, ákvarðanir og gjörðir og kennum þér einfaldar leiðir til að yfirstíga hindranir og auka sjálfsþekkingu.  Við hægjum á, hlúum að og spornum gegn neikvæðum áhrifum álags, streitu og svefnerfiðleika með leiðum sem reynast hjálplegar til að róa taugakerfið m.a. með Yoga Nidra.

Ekki er nauðsynlegt að vera komin með ADHD greiningu til að taka þátt í námskeiðinu.

Innifalið Boðið er upp á veitingar ásamt námskeiðsgögnum og vinnubók. Þátttakendum gefst kostur á einum fríum tíma í ADHD markþjálfun á meðan á námskeiðinu stendur til frekari sjálfsvinnu. 

Fyrir hverja?
Námskeiðið er fyrir konur á öllum aldri sem vilja beina athyglinni að styrkleikum sínum, takast á við  áskoranir og  skila skömminni. Námskeiðið hentar konum sem eru tilbúnar að deila eða læra af reynslu annarra kvenna.

Allar nánari upplýsingar verða sendar skráðum þátttakendum í tölvupósti áður en námskeiðið hefst.

Kennarar: Sigrún Jónsdóttir og Kristbjörg Kona sem báðar eru ADHD markþjálfarar.

Dagsetningar og tímasetningar:
Þriðjudagar 6. 13.  27. febrúar kl. 17:30 - 19:30.
Sunnudagur 3. mars. kl. 12.00-16.00.

Staðsetning: Lífsgæðasetrið St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði 

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is
Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

ADHD og fjármál

Stutt fjarnámskeið með aðferðum sem virka fyrir fólk með ADHD

Fjarnámskeið – zoom

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is
Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

 Sjá nánar um námskeiðin á slóðinni https://www.adhd.is/is/namskeid

 

Að8sig - Ný tækifæri, sjálfskoðun og áræðni árin eftir fimmtugt

Námskeiðinu er ætlað að styðja þá sem finna hjá sér þörf til að staldra við og íhuga næstu skref.

Í hverjum tíma er unnið með ákveðna þætti: Hvað er hamingja? Hvað er vellíðan? Hver er

draumurinn? Þátttakendur kryfja gildi sín, fá innsýn í eigin styrleika og hvernig hægt er að nota þá og

kynnast inngripum úr jákvæðri sálfræði sem auka vellíðan og hamingju. Rætt er um vængi og rætur og kynntar aðferðir sem gagnast við að skipuleggja framtíðina.

Hist er  í þrígang, 3 tímar í senn. Milli 1. og 2. tíma taka þátttakendur styrkleikagreiningu og fá úrlestur.

Kennari er Ragnhildur Vigfúsdóttir Mannauðsráðgjafi og ACC markþjálfi

Námskeiðið fer fram hjá Framvegis í  Borgartúni 20, 3. hæð Reykjavík

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið namskeidhb@vmst.is Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Áfram stelpur

Sjálfstyrkingarnámskeið fyrir konur með ADHD

Staðnámskeið – Lífsgæðasetrið í St. Jósefsspítala, Suðurgötu 41, 220 Hafnarfirði

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is
Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Sjá nánar um námskeiðin á slóðinni https://www.adhd.is/is/namskeid

Áfram veginn

Fjarnámskeið á zoom fyrir fullorðna með ADHD

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is
Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Sjá nánar um námskeiðin á slóðinni https://www.adhd.is/is/namskeid

Gott jafnvægi – námskeið um streitustjórnun

Viltu læra leiðir sem virka fyrir þig til þess að minnka streitu og hlúa betur að þér? 

Viltu finna betra jafnvægi í lífinu og meiri fyllingu og gleði í dögunum þínum? 

Þetta segja þeir sem hafa sótt námskeiðið: 

"Andrúmsloftið var hlýlegt og afslappað og gott að koma upp í Samkennd." 

"Á heildina litið fannst mér námskeiðið vera mjög gagnlegt og ég mæli eindregið með því fyrir alla sem vilja skilja streitu betur og læra hvernig er hægt að stjórna henni." 

“Lydía er augljóslega að tala bæði af reynslu og mikilli fagþekkingu og miðlar efninu til þátttakenda á fyrirhafnarlausan og þægilegan hátt.” 

Hentar: 

Öllum sem upplifa einkenni of mikillar streitu og vilja læra leiðir til þess að finna betra jafnvægi. 

Hvar: 

Námskeiðið verður haldið í notalegum sal Samkenndar-heilsuseturs að Tunguhálsi 19. 

Hvenær: 

Einu sinni í viku  2 klukkustundir í senn í 6 vikur.

Markmið: 

Að þátttakendur skilji betur langvarandi streitu og afleiðingar hennar. 

Að þátttakendur læri leiðir sem virka fyrir þá til þess að minnka streitu í sínu lífi, að hlúa betur að sér og öðlast betra jafnvægi. En á sama tíma að ná betri árangri í lífi og starfi. 

Að þátttakendur skilji sjálfa sig betur og hvernig þeir vilja lifa lífinu. 

Dagskrá námskeiðs: 

  1. Streita og afleiðingar langvarandi streitu. 
  2. Aðferðir við streitustjórnun og að komast í gott jafnvægi 
  3. Grundvallaratriði hugrænnar atferlismeðferðar og taugakerfið 
  4. Grunnþarfir og tilfinningar 
  5. Sjálfsmynd, samkennd og núvitund 
  6. Hver er ég og hver er mín framtíðarsýn? 

Leiðbeinandi: 

Lydía Ósk Ómarsdóttir, sálfræðingur. 

Lydía hefur persónulega reynslu af að vinna sig út úr miklu streituástandi þegar hún var óvinnufær í næstum tvö ár vegna kulnunar. Nú sinnir hún sálfræðimeðferð hjá Samkennd-heilsusetri þar sem hún hjálpar fólki að minnka streitu og finna betra jafnvægi og betri líðan. 

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is 

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda. 

 

HAM - Námskeið í hugrænni atferlismeðferð

Markmið námskeiðsins er að auka færni fólks til að takast á við hamlandi líðan með því að nýta sér aðferðir hugrænnar atferlismeðferðar í daglegu lífi og breyta þannig hugsun, tilfinningum og í kjölfarið viðhalda betri líðan. 

Aðferðin er hentug fyrir einstaklinga sem finna fyrir kvíða, depurð, streitu eða annarskonar vanlíðan og vilja læra leiðir til að bæta líðan sína.

Þátttakendur læra að þekkja tengsl hugsana, tilfinninga og hegðunar sem stjórna líðan. Þeir læra leiðir til að brjóta upp vítahring vanlíðanar og takast á við þessar hamlandi hugsanir.

Kennt er í formi fyrirlestra, umræðna og verkefnavinnu í kennslustundum auk vinnu án leiðbeinanda. Heimanám er mikilvægt þar sem námsmenn vinna ýmis verkefni sem stuðla að því að þeir tileinki sér aðferðir HAM. Námskeiðið var m.a. þróað í samvinnu við sálfræðinga á Reykjalundi og er stuðst við HAM handbók Reykjalundar á námskeiðinu.

 

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið namskeidhb@vmst.is. Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Framvegis - miðstöð símenntunar fer með umsjón námskeiðs en á heimasíðu þeirra er hægt að fá frekari upplýsingar.

*ATH – námskeiðið er hugsað fyrir þá sem hafa ekki lokið framhaldsskóla.

Hannaðu líf þitt - Designing your life

Designing your life er eitt vinsælasta námskeiðið í Stanford háskóla. Þar hafa Bill Burnett og Dave Evens aðstoðað BA/BS og MA/MS nema við að átta sig á því hvað þeir ætla að gera næst. Þeir félagar leita í smiðju til Design Thinking og segja að breytingar krefjist ferils, hönnunarferils, til að átta sig á því hvað við viljum og hvernig við náum því.   Aðferðin felst í því að hugsa eins og hönnuðir, hanna og búa sér til líf. Þessi aðferð gagnast fólki á öllum aldri, þ.e. fólki sem veltir því fyrir sér hvað skal gera næst, hvað það langar til að gera og hvað það getur gert.

Námskeiðið er ætlað einstaklingum sem lokið hafa háskólamenntun.

Ragnhildur Vigfúsdóttir er eini íslenski markþjálfinn sem hefur leyfi til að nýta efnið með markþegum sínum.  Gert er ráð fyrir 10 manns í hóp.

Hópurinn hittist í fimm skipti, 3 klst í senn, eftir fyrsta tíma fær hver og einn 1 klst með markþjálfa þar sem farið  er í styrkleikagreiningu (Strengths Profiler) hvers og eins.  Töluverð vinna verður í tímum og þátttakendur verða að vinna verkefni milli tíma.

Kennari er Ragnhildur Vigfúsdóttir Certified Designing your life coach og PCC markþjálfi

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Með vakandi athygli og innri kyrrð

Um er að ræða 4 vikna sjálfseflandi námskeið sem byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar (HAM)- Jákvæðra sálfræði- Núvitund og Yoga Nidra djúpslökun.

 

Námskeiðið hentar vel einstaklingum sem eru að upplifa mikið álag, streitu, kvíða, þunglyndi/depurð eða svefnvanda.

 

Markmið með námskeiðinu eru:
• Að veita þátttakendum fræðslu og leiðir til að hlúa að andlegri og líkamlegri heilsu.
• Að draga úr streitu og streitueinkennum, ná meiri stjórn á viðbrögðum líkamans við langvarandi álagi.
• Að kenna aðferðir til að rjúfa vítahring neikvæðra hugsana og vera meðvituð um hugsana hátt sinn og hegðun.

 

Uppbygging námskeiðs:
Hugleiðsla/öndun og léttar teygjur (streitulosandi) í byrjun hvers tíma.
• Skoðum aðferðafræði hugrænna atferlismeðferða (HAM) sem byggir á þeirri kenningu að túlkun okkar, væntingar og viðhorf hafi töluverð áhrif á líðan. Gengið er út frá því að manni líði eins og maður hugsar.
• Kynnt verður hugmyndafræði jákvæðrar sálfræði, þ.e. hvað gengur vel í lífi fólks, styrkleikar og veikleikar skoðaðir og mikilvægi þess að auka jákvæðar tilfinningar og bjartsýni.
• Í núvitundar hlutanum erum við að læra að staldra við, að taka eftir því hvernig okkur líður og hverju við erum að finna fyrir. Við erum að skoða hugsanir okkar og tilfinningar meðvitað án þess að dæma þær.
• Í lok tímans er þátttakendum boðið upp á djúpslökun með aðferðum Yoga Nidra þar sem áhersla er lögð á kyrrð og hvíld í hlýlegu umhverfi.

 

Ávinningur námskeiðsins:
• Aukin færni til að takast á við streitu, kvíða og álag í daglegu lífi
• Að breyta hugsanamynstrum og tilfinningalegum viðbrögðum

 

Umsjón: SEN ráðgjöf.

Kennari: Lovísa Hafsteinsdóttir, ráðgjafi, Yoga kennari og Yoga Nidra kennari

 

Tímalengd: kennt er 2x í viku, 2 tíma í senn í 4 vikur. Samtals 16 tímar

Staðsetning: Lífsgæðasetrið St.Jó- Suðurgötu 41, Hafnarfjörður

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

 

Mín líðan - Sjálfsefling á netinu

Mín líðan (www.minlidan.is) býður upp á alhliða sálfræðiþjónustu á netinu. Mín líðan býður upp á 10 tíma staðlaða sálfræðimeðferð á netinu veitta af löggildum sálfræðingum, þar sem öll samskipti fara fram með skrifuðum texta. Boðið er upp á fjórar mismunandi meðferðir við einkennum þunglyndis, kvíða, félagskvíða og lágs sjálfsmats. Meðferðin byggir á aðferðum hugrænnar atferlismeðferðar þar sem fólk lærir að draga úr vanlíðan með því að breyta hvernig það hugsar og hegðar sér.

Meðferðin samanstendur af 1) fræðslu, 2) æfingum og verkefnum, 3) spurningalistum og 4) skilaboðum til sálfræðings. Skjólstæðingur fær einstaklingsmiðaða endurgjöf á öll verkefni sem skilað er inn og hægt er að senda sálfræðingi skilaboð hvenær sem er. Árangur í meðferðinni er metinn með spurningalistum þrisvar sinnum yfir meðferðina svo hægt er að fylgjast með árangrinum. Þú getur prófað frían kynningartíma á www.minlidan.is.

Hægt er að svara nokkrum einföldum spurningum til að sjá hvaða meðferð hentar þér:  https://www.minlidan.is/spurningalisti

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

 

Staldra við - Náttúrunámskeið við streitu - Saga story house

Vinnu- og námsmiðuð sjálfsefling

Námskeiðið hentar fólki sem upplifir neikvæð áhrif álags og streitu á heilsu og lífsgæði og langar til að öðlast reynslu, þekkingu og verkfæri til að yfirfæra yfir á daglegt líf.

Markmið með námskeiðinu er tvíþætt:
Þátttakendur öðlist þekkingu og beina reynslu af ólíkum þáttum sem stuðla að jafnvægi í daglegu lífi og hafa jákvæð áhrif á heilsu og lífsgæði.

Þátttakendur öðlist þekkingu og beina reynslu af aðferðum sem stuðla að vellíðan, streitulosun og endurheimt í gegnum einfaldar öndunaræfingar, leiddar núvitundargöngur í náttúrunni og djúpslökun.

Hver tími skiptist í þrennt:  

Fræðsla og verkefnavinna
Fjallað er um aðferðir og leiðir til að efla lífsgæði. Í hverjum tíma eru tekin fyrir þemu/áherslur sem stuðla að vellíðan og jafnvægi í daglegu lífi.

Kyrrðargöngur
Farið verður í leiddar núvitundargöngur í náttúrunni. Valdar eru þægilegar gönguleiðir í nærumhverfinu þar sem gengið er í ólíkri náttúru, meðal annars með hafi, hrauni, vatni, skógi og læk. . Gengið er að hluta til í þögn þar sem áhersla er lögð á núvitundarþjálfun, ígrundun og endurheimt.

Djúpslökun
Í lok hvers tíma er þátttakendum boðið upp á djúpslökun með gagnreyndum aðferðum þar sem áhersla er lögð á streitulosun og endurheimt.

Hugmyndafræði og nálgun við kennslu
Stuðst er við hugmyndafræði iðjuþjálfunar, jákvæðrar sálfræði, kenningar um áhrif náttúru á líðan, hugmyndafræði reynslunáms (Experiental Learning),  og núvitundarþjálfun.

Kennarar eru stofnendur og eigendur Sögu – Story House:

Guðbjörg Björnsdóttir iðjuþjálfi, MA-diplóma í jákvæðri sálfræði og Yoga Nidra  kennararéttindi
Ingibjörg Valgeirsdóttir MA-diplóma í jákvæðri sálfræði, MBA, Uppeldis og menntunarfræði HÍ Yoga- og Yoga Nidra kennararéttindi

Tímalengd: Kennt er 2 x viku, 3 tímar í senn, 4 vikur. Alls 24 klst.

Staðsetning: Námskeiðið fer fram í hlýlegu lærdómsumhverfi á Vinnustofu Sögu,
Flatahrauni 3, 220  Hafnarfirði.

http://www.sagastoryhouse.is

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið namskeidhb@vmst.is Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Vöxtur og vegferð – einhverfa

Vöxtur og vegferð er sjálfstyrkingarnámskeið fyrir 16 ára og eldri sem er með greiningu eða grun um
að vera á einhverfurófinu. Á námskeiðinu fá þau fræðslu um einkenni einhverfu, áhrif á líðan,
samskipti við aðra, stýrifærni við iðju og rýnt er í styrkleika og farið í markmiðasetningu.
Námskeiðið byggir á kenningum um taugasálfræðilegan þroska, skynjun og skynúrvinnslu (Sensory
Integration Theory), iðju og þátttöku (Model of Human Occupation), reynslunámi (Experiential
learning), styrkleikanálgun og valdeflingu (Empowerment).
Tilgangur námskeiðs er að skilja kjarna persónunnar, ólíka hegðun og tegund af samskiptum. Áhersla
er lögð á mikilvægi samkenndar í eigin garð, trú á eigin getu og veittur stuðningur við að móta næstu skref í vegferð lífsins. Markmið þátttöku er að efla sjálfsmynd, skilning á eigin líðan og efla getu til að takast á við ólíkar aðstæður í samskiptum, félagsþátttöku og í starfi.


Umsagnir fyrrum þátttakenda einkennast af því að upplifa efni námskeiðs gagnlegt, eflandi og
hvetjandi þar sem þau fái tækifæri á að máta sig og sínar aðstæður við aðstæður annarra, umræður og innihald námskeiðsins.


Kennari: Guðrún Jóhanna Hallgrímsdóttir iðjuþjálfi og Sigrún Jónsdóttir þroskaþjálfi, einhverfu og ADHD markþjálfi


Tímalengd: kennt er 1x í viku, 2 klst í senn í 6 vikur.


Staðsetning: Lífsgæðasetrið St. Jó, Suðurgötu 41 í Hafnarfirði eða á netinu gegnum ZOOM
fyrir þá sem treysta sér ekki til að mæta í hús eða eru búsettir út á landi.


Ath, strætó nr. 1 stoppar fyrir aftan húsið (við Hringbraut/St. Jósefsspítali) og strætó nr. 21 á
Strandgötu (við Víkingaheimilið) í ca 5-7 mínútna gönguleið frá St. Jó.


https://www.heimastyrkur.is/vöxtur-og-vegferð-my-growth-path


Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is
Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.

Viltu reyna jákvæða sálfræði á eigin skinni?

Seiglan, styrkleikar, hamingjan, hugarfar og atvinnuleit

Markmið námskeiðsins er að efla vellíðan og að þátttakendur fái vind í seglin í atvinnuleitinni.

Unnið er með áhrifaríkar æfingar úr smiðju jákvæðrar sálfræði og vinnusálfræði sem efla vellíðan, dug og þor.

Unnið er með hugarfar, viðhorf og praktísk atriði í atvinnuleitinni. Hver þátttakandi tekur seiglu-, hamingju- og styrkleikapróf.

Markmið:

  • Unnið er með viðhorf gagnvart atvinnuleitinni
  • Kynnt verkfæri úr jákvæðri sálfræði sem efla kjark og dug eru kynnt Farið er yfir breytingar í atvinnulífið og hvar ólíkir styrkleikar nýtast
  • Helstu aðferðir í atvinnuleitinni skoðaðar
  • Námskeiðið leggur ábyrgð á hvern þátttakanda, hver og einn heldur dagbók, tekur þátt í umræðum og leysir verkefni milli tíma
  • Áhersla er lögð á að bera kennsl á framfarir og nýta æfingar sem vísindi hafa sýnt fram á að styðja við uppbyggingu s.s. gróskuviðhorf, þekkja sína seiglu, styrkleika og efla von
  • Allir gera persónulega áætlun

Fyrirkomulag:

  • Námskeiðið er kennt á fimm virkum dögum, í 2-3 klukkutíma í senn.
  • Kennt hjá Framvegis, Borgartúni 20.
  • Umsjón: Hrefna Guðmundsdóttir, MA Vinnu- og félagssálfræðingur. Með framhaldsskólaréttindi, markþjálfun og verkefnastjórnun að baki. Fyrsti formaður félags um jákvæða sálfræði og meðhöfundur að bókinni; Why are Icelanders Happy? (2018)

Skráning á námskeið fer fram í gegnum netfangið: namskeidhb@vmst.is

Mikilvægt er að fram komi heiti námskeiðs, nafn og kennitala þátttakanda.


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni