Hreyfing ehf.
Snyrtifræðingur
Við leitum að snyrtifræðingi sem smellpassar í okkar hóp, hefur metnað til að vinna af samviskusemi og fagmennsku og þyrstir stöðugt í nýjustu þekkingu í faginu og vill taka þátt í að byggja upp og þróa starfsemi snyrtistofunnar.
Viðkomandi þarf að hafa góða reynslu og búa yfir ríkri þjónustulund.
Hreyfing er lifandi og skemmtilegur vinnustaður sem leggur áherslu á að ráða til sín öflugt fólk í öll störf fyrirtækisins.
Gildin okkar eru: fagleg, hrein og notaleg.
- Fagleg stendur fyrir það að við höfum metnað til að veita þjónustu af gæðum sem ekki á sér hliðstæðu hér á landi. Við hvetjum hvert annað til að viðhalda yfirburðaþekkingu á okkar sviði til eflingar hópsins og hagsbóta fyrir viðskiptavini.
- Hrein þýðir að við leggjum kapp á snyrtimennsku í öllu okkar starfi og það sést á húsnæði okkar og aðstöðu en jafnframt að við erum hrein og bein í framkomu við hvert annað og við viðskiptavini.
- Notaleg dvöl í okkar stöð er okkur kappsmál og með persónulegu viðmóti, virðingu og hlýju í samskiptum náum við að búa til umhverfi sem viðskiptavinir kunna að meta og vinnustað þar sem besta fagfólkið vill starfa.
Áhugasamir sendi umsókn ásamt ferilskrá á andrea@hreyfing.is Umsóknarfrestur er til og með 31/01/21.
Starf nr.: GS210113-01
Skráð á vefinn: 11.01.2021
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%