Umsókn um atvinnuleysisbætur

  • Þú sækir um atvinnuleysisbætur í gegnum Mínar síður Vinnumálastofnunar.
  • Til þess að  þú getir sótt um atvinnuleysisbætur að þá þarftu að vera með Íslykil eða rafræn skilríki.
Fara inn á Mínar síður og sækja um atvinnuleysisbætur Sækja um Íslykil. Sækja um rafræn skilríki

Hvenær á að sækja um atvinnu og atvinnuleysisbætur?

Þú getur sótt um atvinnuleysisbætur  allt að mánuði áður en þú verður atvinnulaus að fullu eða hluta. Sem umsækjandi getur þú í fyrsta lagi fengið greiddar atvinnuleysisbætur frá og með þeim degi sem þú getur hafið störf, þ.e. ert orðinn atvinnulaus.

Mikilvægt er að hafa í huga að atvinnuleysisbætur eru ekki greiddar afturvirkt. Því er mikilvægt að sækja um atvinnuleysisbætur í síðasta lagi þann dag sem þú verður atvinnulaus, t.d. þegar uppsagnarfresti lýkur.

Hvar á að sækja um atvinnuleysisbætur?

Þú sækir um atvinnuleysisbætur í gegnum mínar síður á vef  Vinnumálastofnunar. Til að komast í umsóknarferlið smellir þú á mínar síður og síðan velur þú Atvinnuleitandi. Þú getur einnig smellt hér til að komast á mínar síður.

Til að sækja um atvinnuleysisbætur þarftu að vera með Íslykill eða rafræn skilríki

Athugaðu að þú þarft  að vera með íslykil eða rafræn skilríki til að sækja um atvinnuleysisbætur. Ef þú ert ekki með slíkt geturðu sótt um  Íslykil inni á www.island.is Bæði er hægt að fá íslykilinn í bréfpósti á lögheimili og í heimabanka. Hafa skaltu í huga að það getur tekið 4-6 daga í bréfpósti. Ef þú sækir um rafræn skilríki, ferðu inn á www.skilriki.is

Þegar þú hefur  hefur fengið  íslykil eða rafræn skilríki ferðu á forsíðu heimasíðu Vinnumálastofnunar  og smellir  á  "mínar síður"  og skráir þig inn með íslykli/rafrænum skilríkjum. Efst á síðunni er flipi sem stendur  "umsóknir" undir honum er hægt að velja umsókn um atvinnu.  Þeir sem eru að sækja um atvinnuleysisbætur velja umsókn um atvinnu- og atvinnuleysisbætur.

Hvað eru Mínar síður?

Mínar síður er þitt svæði og þar getur þú m.a.:

  1. Sótt um atvinnu
  2. Sótt um atvinnuleysisbætur
  3. Sent inn gögn sem tengjast umsókn þinni
  4. Fylgst með ferli umsóknar þinnar
  5. Breytt umsókn þinni
  6. Skoðað greiðsluseðla
  7. Uppfært upplýsingar
  8. Sent inn upplýsingar um tekjur
  9. Skráð orlof

Hvaða gögnum þarf að skila?

Þegar þú sækir um atvinnuleysisbætur  á Mínum síðum þarftu eftir atvikum að skila gögnum með umsókninni. Það kemur fram í umsóknarferlinu hvaða gögn það eru. 
Það fer allt eftir aðstæðum þínum hvaða gögnum þú þarft að skila. 

Hér eru dæmi um gögn sem þarf að skila:

  • Staðfestingu á starfstímabili eða staðfestingu á vinnustundum frá stéttarfélagi ef ekki er hægt að fá staðfestingu starfstímabils frá atvinnurekanda.
  • Starfshæfnivottorð ef um skerta vinnufærni er að ræða.
  • Ef þú ert í öðru starfi þarf að skrá það inn í umsókn um atvinnuleysisbætur.
  • Tilkynna þarf um greiðslur frá lífeyrissjóði, Tryggingastofnun og öðrum aðilum með aðgerðinni "Tilkynna tekjur eða vinnu" á Mínum síðum.
  • Staðfestingu frá skóla um námslok þar sem fram kemur námstímabil umsækjanda.
  • Staðfestingu frá skóla um námshlutfall.

Athugaðu að ef þú hefur fyllt út umsókn og þarft að skila viðbótargögnum eftir það að þá  getur þú alltaf gert það á Mínum síðum með aðgerðinni "Skila gögnum".

 


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni