Opnað fyrir umsóknir vegna stuðning til greiðslu launa

Vinnumálastofnun hefur nú opnað umsókna- og greiðslukerfi fyrir umsækjendur um tímabundinn stuðning vegna launagreiðslna þeirra sem ekki hafa getað sinnt störfum sínum í Grindavík.

Starfsfólk og sjálfstætt starfandi einstaklingar sem ekki hafa getað sinnt störfum sínum í Grindavíkurbæ og atvinnurekendur sem greitt hafa slíku starfsfólki úr Grindavík laun geta átt  rétt á stuðningnum að ákveðnum skilyrðum uppfylltum. Sjá nánar um málið
hér:

Opnað hefur verið fyrir umsóknir fyrir starfsfólk sem ekki fær lengur laun frá atvinnurekanda og sjálfstætt starfandi einstaklinga. Ráðgert er að opna umsóknarferli fyrir atvinnurekendur föstudaginn 15. desember næstkomandi.

Lesa meira

Tímabundinn stuðningur til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindarvíkurbæ

Alþingi samþykkti  þann 27. nóvember frumvarp félagsmálaráðherra um tímabundinn stuðning til greiðslu launa vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ. Vinnumálastofnun annast framkvæmd laganna. Markmið með lögunum er að vernda afkomu fólks sem ekki getur sinnt störfum sínum vegna náttúruhamfara í Grindavíkurbæ með því að tryggja launagreiðslur til viðkomandi upp að ákveðnu hámarki. Jafnframt er markmiðið að viðhalda ráðningarsambandi atvinnurekenda og starfsfólks.

Lesa meira

Stuðningur vegna launa fólks sem starfar í Grindavík

Ríkisstjórn Íslands samþykkti á fundi sínum nú í morgun frumvarp Guðmundar Inga Guðbrandssonar, félags- og vinnumarkaðsráðherra, um tímabundinn stuðning vegna launa fólks sem starfar í Grindavík. 

Lesa meira

Upplýsingar vegna stöðunnar í Grindavík

Í ljósi þeirrar óvissu sem uppi er vegna aðstæðna í Grindavík vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri:

Lesa meira

Information regarding the situation in Grindavík

An announcement from The Directorate of Labour in light of the current uncertainty due to the situation in Grindavík:

Lesa meira

Informacje dotyczące sytuacji w Grindavíku

Mając na uwadze stan niepewności, istniejący w związku z sytuacją w Grindavíku, Urząd Pracy (Vinnumálastofnun) chciałby przekazać, co następuje:

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi í október var 3,2%

Skráð atvinnuleysi í október var 3,2% og hækkaði úr 3,0% í  september.

Lesa meira

Desemberuppbót til atvinnuleitenda

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, félags- og vinnumarkaðsráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda. Óskert desemberuppbót er 99.389 krónur. Atvinnuleitendur með börn á framfæri fá jafnframt sérstaka desemberuppbót fyrir hvert barn yngra en 18 ára.

Lesa meira

Hópuppsagnir í október

Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í október.

Lesa meira

Skráð atvinnuleysi í september var 3,0%

Skráð atvinnuleysi í september var 3,0% og hækkaði úr 2,9% í ágúst.

Lesa meira

Réttindi ríkisborgra Venesúela sem sótt hafa um alþjóðlega vernd til atvinnuþátttöku

Í ljósi umræðna um atvinnuréttindi ríkisborgara Venesúela sem sótt hafa um alþjóðlega vernd í kjölfar úrskurðar Kærunefndar Útlendingamála, vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri.

Lesa meira

Tilkynning vegna fréttaflutnings um atvinnuþátttöku Venesúelabúa

Í ljósi fréttaflutnings Vísis.is um atvinnuþátttöku Venesúelabúa hér á landi þann 2. okt s.l. telur Vinnumálastofnun rétt að taka fram að útgefin bráðabirgðaatvinnuleyfi til íbúa frá Venesúela eru 56 talsins frá 1. janúar 2022. Því er það rangt sem fram kom í nefndri frétt að stór hluti umrædds hóps sé starfandi með slíkt atvinnuleyfi.  Stofnunin áréttar það sem fram kom í fréttinni að hún býr ekki yfir neinni tölfræði um atvinnuþátttöku íbúa frá Venesúela sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða mannúðarleyfi hér á landi.

Lesa meira

Þú hefur skoðað 24 fréttir af 223

Sýna fleiri fréttir