Tilkynning til atvinnurekenda sem eru með starfsmenn á hlutabótum

Opnað hefur verið fyrir umsóknir um styrk fyrir fyrirtæki með starfsmenn sem fengu greiddar hlutabætur fyrir apríl og maí 2021. Umsóknarfrestur er til og með 30. Júní 2021.

Lesa meira

Hópuppsagnir í maí

Engar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í maí.

Lesa meira

Almannatryggingar á Norðurlöndunum - áskoranir eftir Covid 19

Norræna almannatryggingamótið verður haldið dagana 26. – 27. maí undir yfirskriftinni Almannatryggingar á Norðurlöndunum – áskoranir eftir Covid 19.

Lesa meira

Vegna úrskurða úrskurðarnefndar velferðarmála í málum nr. 431/2020 og 624/2020

Vegna ákvarðana úrskurðarnefndar velferðarmála í málum nr. 431/2020 og 624/2020 hefur Vinnumálastofnun þurft að taka til endurskoðunar samspil reiknireglu laga nr. 24/2020 og skilyrða sömu laga fyrir greiðslum.  Niðurstaðan er sú að greiðsla getur numið að hámarki þeim fjölda daga er einstaklingur sætti sóttkví. Réttur til greiðslu nær ekki yfir þá daga sem starfsmaður gat sinnt starfi sínu á meðan hann var í sóttkví. 

Lesa meira

Almennt atvinnuleysi var 10,4% í apríl

Almennt atvinnuleysi var 10,4% í apríl og minnkaði úr 11,0% í mars. Atvinnuleysið var 11,4% í febrúar, 11,6% í janúar og 10,7% í desember.

Lesa meira

Sumarstörf námsmanna 2021

Opnað verður fyrir umsóknir í sumarstörf námsmanna þriðjudaginn 11. maí á vef Vinnumálastofnunar.
Skilyrði fyrir þátttöku eru að námsmenn séu 18  ára á árinu eða eldri og þurfa að hafa verið í námi að vori 2021 eða séu að fara í nám n.k. haust.

Lesa meira

Hópuppsagnir í apríl

Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í apríl þar sem 55 starfsmönnum var sagt upp störfum í fjármála – og vátryggingastarfsemi.  Uppsagnirnar koma til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2021.

Lesa meira

Sumarstörf námsmanna 2021

Stjórnvöld ætla að verja um 2,4 milljörðum króna í í átaksverkefni til að fjölga tímabundnum störfum fyrir námsmenn í sumar. Stefnt er að því að til verði um 2.500 störf fyrir námsmenn 18 ára og eldri. 

Lesa meira

Almennt atvinnuleysi var 11,0% í mars

Almennt atvinnuleysi var 11,0% í mars og minnkaði úr 11,4% í febrúar. Atvinnuleysið var 11,6% í janúar, 10,7% í desember og 10,6% í nóvember.

Lesa meira

Hópuppsagnir í mars

Engar tilkynningar um hópuppsagnir í mars höfðu borist Vinnumálastofnun síðla miðvikudagsins 31.mars.

Lesa meira

Yfirlýsing Vinnumálastofnunar vegna afgreiðslu Ábyrgðasjóðs launa á kröfum starfsmanna í þrotabú Menn í vinnu

Í ljósi fjölmiðlaumfjöllunar og yfirlýsingar Eflingar í dag um afgreiðslu Ábyrgðasjóðs launa á kröfum starfsmanna í þrotabú Menn í vinnu, vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri:

Lesa meira

Heildaratvinnuleysi var 12,5% í febrúar

Almennt atvinnuleysi var 11,4% í febrúar og minnkaði úr 11,6% í janúar. Atvinnuleysið var 10,7% í desember, 10,6% í nóvember og 9,9% í október. Vinnumálastofnun spáir því að almennt atvinnuleysi minnki í mars og verði á bilinu 10,9% til 11,3%.  Sjá nánar:

Lesa meira

Þú hefur skoðað 36 fréttir af 46

Sýna fleiri fréttir