Dagar hf.
Sumarstarf í móttöku
Dagar leita að einstakling í sumarstarf í móttöku daga.
Starfið felst mjög fjölbreyttum verkefnum svo sem, símsvörun, móttöku gesta, innkaupum, gagnaskráningu starfsmanna, þátttöku í mannauðsverkefnum auk fjölda annarra verkefna.
Mikilvægt er að viðkomandi hafi ríka þjónustulund, skipulögð vinnubrögð, þekkingu á Microsoft kerfum, mikla hæfni í íslensku og ensku, sýni metnað og samviskusemi í sínum störfum og hafi náð að lágmarki 21 árs aldri.
Opnunartími móttöku er frá 8:00 til 16:00 og til 15:30 á föstudögum og starfið er frá 18. júní til og með 2. ágúst.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Guðfinna Ingjaldsdóttir mannauðsstjóri á netfanginu: gudfinna@dagar.is.
Umsóknarfrestur
31.05.2024
Starf nr.: 240522-01
Skráð á vefinn: 22.05.2024
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%