Desemberuppbót  vegna ársins 2023

English

Atvinnuleitendur sem staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember á árinu 2023 og eru tryggðir samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar í nóvember mánuði eiga rétt til greiðslu desemberuppbótar.

Áætlað er að greiða út desemberuppbótina 08. desember nk.

Fjárhæðir: 

Hámarksfjárhæð uppbótarinnar er  99.389 kr. og hún er aldrei lægri en 24.847 kr. 

Með hverju barni á framfærslu atvinnuleitanda er greitt aukalega 6% af óskertri desemberuppbót eða 5.963 kr. 

Greiddur er skattur af desemberuppbót. 

Skilyrði:

Staðfesta atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember 2023.

Teljast tryggður í nóvember mánuði 2023.

Til að eiga rétt á fullri desemberuppbót þarf atvinnuleitandi að hafa verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði á árinu 2023 eða meira og eiga fullan bótarétt. 

Atvinnuleitandi sem á ekki fullan bótarétt og hefur verið skráður atvinnulaus í 10 mánuði eða meira fær hlutfallslega uppbót í samræmi við rétt sinn til atvinnuleysisbóta. 

Atvinnuleitandi sem hefur verið skráður skemur en 10 mánuði atvinnulaus fær hlutfallslega desemberuppbót miðað við fjölda mánaða sem hann hefur verið á skrá og í samræmi við bótarétt sinn. 

Dæmi ef þú hefur verið skemur en 10 mánuði á skrá: 

  • Ef þú hefur verið 4 mánuði á skrá og átt 100% bótarétt þá átt þú rétt til 40% desemberuppbót eða 39.756  kr. 
  • Ef þú hefur verið 6 mánuði á skrá og átt 50% bótarétt þá átt þú rétt til 30% desemberuppbótar eða 29.816 kr. 

 


Ég fékk greiddar atvinnuleysisbætur á árinu 2023 en ekki vegna nóvember mánaðar:

Þá átt þú ekki rétt til desemberuppbótar. Skilyrði er að atvinnuleitandi staðfesti atvinnuleit milli 20. nóvember og 3. desember og hafir talist tryggður í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar í nóvember mánuði. 

Hvar finn ég reglugerðina?

Reglugerð um desemberuppbót má nálgast með því að smella á eftirfarandi tengil:
Reglugerð um desemberuppbót 2022


Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni