Skrá starf

Atvinnurekendur geta óskað eftir starfskrafti hjá þjónustuskrifstofum Vinnumálastofnunar með því að fara á mínar síður Atvinnurekenda með íslykli og skrá starf.  Atvinnurekandi hefur val um hvort starfið sé auglýst á vef Vinnumálastofnunar og birtist þar þá samdægurs eða hvort starfsfólk stofnunarinnar sjái um að finna starfsmann fyrir viðkomandi fyrirtæki.  Atvinnuráðgjafi leitar að starfsmanni við hæfi og sendir  ferilskrár til atvinnurekanda.  

Atvinnurekendur geta veitt starfsmönnum sínum umboð til að fara inn á mínar síður. Hægt er að nálgast upplýsingar um umboð á island.is

Hér eru leiðbeiningarmyndbönd um hvernig á að veita umboð, skrá starf og hvernig ráðningarferlið gengur fyrir sig.

1. Að veita umboð: 

2. Að skrá starf:

3. Ráðningarferlið: 


Vinnumálastofnun býður upp á  ráðningarstyrki þar sem fyrirtæki geta sótt um styrk til að þjálfa nýja starfsmenn úr röðum atvinnuleitenda. Ráðningarstyrkir er samstarf milli Vinnumálastofnunar og fyrirtækja, sveitarfélaga, stofnana eða frjálsra félagasamtaka sem eiga þess kost að ráða atvinnuleitendur með stuðningi Atvinnuleysistryggingasjóðs.  Hér er hægt að nálgast nánari upplýsingar um ráðningarstyrki

 Atvinnuleitendur búa yfir margvíslegri reynslu, þekkingu og hæfni og ættu flest fyrirtæki að geta fundið starfsmenn við hæfi.
Helstu skilyrði fyrir ráðningu einstaklings  með ráðningarstyrk eru að fyrirtækið þarf að vera skráð og í öruggum rekstri og hafi ekki sagt upp starfsmönnum síðustu mánuði.

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni