Skráð atvinnuleysi í júní var 3,4%
Skráð atvinnuleysi í júní mældist 3,4% og lækkaði um 0,2 prósentustig frá maí.
Að jafnaði voru 6.723 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í júní og fækkaði um 44 frá maí. Alls voru 2.657 fleiri á atvinnuleysisskrá í júní 2019 en í júní árið áður.