Skráð atvinnuleysi í janúar var 4,8%
Skráð atvinnuleysi í janúar mældist 4,8% og jókst um 0,5 prósentustig frá desember.
Að jafnaði voru 8.808 einstaklingar á atvinnuleysisskrá í janúar og fjölgaði um 789 frá desember. Alls voru 3.406 fleiri á atvinnuleysisskrá í janúar 2020 en í janúar árið áður.