Hópuppsagnir í nóvember
Alls bárust Vinnumálastofnun 2 tilkynningar um hópuppsagnir í nóvember, þar sem 40 starfsmönnum var sagt upp störfum, 27 í fjármálastarfsemi og 13 í heilbrigðis- og félagsþjónustu.
Uppsagnarfrestur þeirra sem sagt var upp í hópuppsögnum nóvembermánaðar er 3 til 6 mánuðir og koma því til framkvæmda á tímabilinu mars til júní 2021.