Hópuppsagnir í desember 2020 og á árinu 2020
Þrjár tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í desember 2020 þar sem 137 starfsmönnum var sagt upp störfum, 94 í menningar, íþrótta og tómstundastarfsemi, 32 í iðnaði og 11 í flutningastarfsemi. Uppsagnirnar koma allar til framkvæmda í apríl 2021.
Á árinu 2020 barst Vinnumálastofnun 141 tilkynning um hópuppsagnir, þar sem 8.789 manns var sagt upp störfum. Þetta er mesti fjöldi hópuppsagna sem tilkynntur hefur verið til Vinnumálastofnunar á einu ári.