Opnunartími yfir hátíðirnar
Vinnumálastofnun verður lokuð á aðfangadag og gamlársdag. Dagana 27. til 30. desember er opið í þjónustuveri milli 09:00 og 15:00 á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík og hjá Fæðingarorlofssjóði.
Þjónustuskrifstofur utan höfuðborgarsvæðisins eru opnar dagana 27. til 30. desember frá kl. 09:00-13:00
Símaverið er opið sömu daga frá kl. 09:00-15:00.
Við bendum á að hægt er að ræða við snjallmennið Vinný allan sólahringinn hér á vefnum og þá er hægt að senda inn gögn og fleira í gegnum Mínar síður.
Í ljósi aðstæðna vegna fjölda COVID smita hvetjum við alla til þess að nýta sér Vinny, Mínar síður eða símaverið.
Vinsamlegast athugið að breytingar geta orðið á opnunartíma hjá Vinnumálastofnun ef kemur til hertra sóttvarnaraðgerða vegna COVID-19.