Hópuppsagnir í júlí
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júlí þar sem 53 starfsmönnum var sagt upp störfum, þar af 31 starfsmanni í fiskvinnslu og 22 í flutningum. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í október/nóvember 2023.