Hópuppsagnir í ágúst
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst þar sem 52 starfsmönnum var sagt upp störfum, þar af 27 starfsmönnum í iðnaði og 25 í upplýsingatækni. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í nóvember og desember 2023.