Tilkynning um innheimtu hjá sýslumanni

 Vinnumálstofnun vekur athygli á því að í október hefst vinna við að senda kröfur til innheimtu hjá innheimtumiðstöðinni. Sýslumaðurinn á Norðurlandi vestra sér um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysistrygginga fyrir Vinnumálastofnun. Um er að ræða kröfur sem stofnaðist til vegna ofgreiddra atvinnuleysistrygginga á árunum 2021-2023. Allir viðtakendur hafa áður fengið tilkynningu frá stofnuninni og áskorun um endurgreiðslur á árunum 2022-2024.

Eftir að skuld hefur verið send í innheimtu til innheimtumiðstöðvar stofnast krafa í heimabanka viðtakanda. Bent er á að unnt er að óska eftir greiðsludreifingu hjá sýslumanni. Slíkar beiðnir þurfa að berast skriflega á netfangið innheimta@syslumenn.is. Sýslumannsembættið veitir allar upplýsingar um feril innheimtu og greiðsludreifingu. Allar spurningar um tilurð skulda skal beina til Greiðslustofu Vinnumálastofnunar á netfangið: innheimta@vmst.is. Frekari upplýsingar um innheimtu ofgreiddra atvinnuleysistrygginga má nálgast á vefsíðu Vinnumálastofnunar.

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni