Sameiginlegt eftirlit stofnana með hópbifreiðum á erlendum skráningarmerkjum og starfsmönnum

Tollstjóri, Samgöngustofa, Vinnumálastofnun, ríkisskattstjóri og Lögreglustjórinn á Austurlandi munu standa fyrir sameiginlegri eftirlitsaðgerð við komu farþegaferjunnar Norrænu til Seyðisfjarðarhafnar 16. apríl nk.

Tilgangur eftirlitsaðgerðarinnar er að athuga innflutning og skráningu á hópbifreiðum sem koma hingað til lands á erlendum skráningarmerkjum og ætlaðar eru til atvinnustarfsemi hér á landi.

Eftirlitið mun snúa að ökutækjum, ökumönnum þeirra og ef við á öðrum starfsmönnum viðkomandi fyrirtækis.

Aðilar sem huga á atvinnurekstur ökutækja á erlendum skráningarmerkjum eru hvattir til að kynna sér viðeigandi lög og reglur og ganga úr skugga um að lögbundin skilyrði séu uppfyllt.

 

Á eftirfarandi hlekkjum má finna frekari upplýsingar:

Upplýsingar um innflutning hópbifreiða og annarra ökutækja til notkunar í atvinnuskyni af heimasíðu tollstjóra.

Upplýsingar um tímabundinn innflutning ökutækja með erlend skráningarmerki af heimasíðu tollstjóra.

Upplýsingar um undanþágur frá atvinnuleyfi vegna skammtímavinnu af heimasíðu Vinnumálastofnunar

Upplýsingar um atvinnuleyfi útlendinga af heimasíðu Vinnumálastofnunar

Registering at the Directorate of Labour

 

Eftirfarandi hlekkir vísa í viðeigandi lög og reglugerðir.

Tollalög nr. 88/2005

Reglugerð 630/2008 um ýmis tollfríðindi

Lög um atvinnuréttindi útlendinga nr. 97/2002

Lög um útsenda starfsmenn og skyldur erlendra þjónustuveitenda nr. 45/2007

Lög um vörugjald af ökutækjum, eldsneyti o.fl.

Lög um tekjuskatt nr. 90/2003.

Lög um staðgreiðslu nr. 45/1987.

Lög um virðisaukaskatt nr. 50/1988. 

Lög um farþegaflutninga- og farmflutninga á landi nr. 28/2017

Reglugerð nr. 474/2017 um leyfi til að stunda farþegaflutninga og farmflutninga á landi (samsett)

Reglugerð um ökuskírteini nr. 830/2011 (samsett)

Reglugerð nr. 605/2010 um aksturs- og hvíldartíma ökumanna, notkun ökurita og eftirlit (samsett)

 

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni