Heilbrigðisstofnun Vesturlands
Sjúkraliði/almennur starfsmaður hjúkrunarheimili
Heilbrigðisstofnun Vesturlands óskar eftir að ráða starfsmenn í umönnun á öldrunardeildina á Hvammstanga. Um er að ræða starf í vaktavinnu í starfshlutfalli 40-100%, eftir samkomulagi.
Öldrunardeildin er ætluð fyrir einstaklinga í hjúkrunar- og hvíldarrýmum og starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við umönnun skjólstæðinga á öldrunardeild. Viðkomandi vinnur eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunar.
Til greina kemur að ráða almennan starfsmann ef ekki fæst sjúkraliði í starfið.
Umsóknarfrestur
24.07.2022
Starf nr.: 220704-06
Skráð á vefinn: 04.07.2022
Stöðugildi: 2
Starfshlutfall: 100%