Ástund ehf.
Sölufulltrúi
Ástund Austurveri óskar að ráða duglegan starfskraft til starfa í verslun okkar að
Háaleitisbraut 68.103 Reykjavík.
Starfið fellst í söluráðgjöf, almenn verslunarstörf og ýmis tilfallandi verkefni.
Viðkomandi þarf að hafa ríka þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiftum.
Vera stundvís, jákvæð og heiðarleg í starfi og hafa gott vald á íslensku.
Kostur ef viðkomandi hefur reynslu af verslunarstörfum.
Vinnutími kl. 11:00-18:00 virka daga nema föstudaga til kl.17:00.
Einnig getur verið um hlutastarf að ræða.
Laugardagsvinna eftir samkomulagi ásamt launakjörum.
Upplýsingar veitir Arnar Guðmundsson arnar@astund.is
Umsóknarfrestur
12.03.2024
Starf nr.: 240228-10
Skráð á vefinn: 28.02.2024
Stöðugildi: 1
Starfshlutfall: 100%