Vinnumálastofnun

Sérfræðingur í flóttamannateymi

Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu auglýsir laust til umsóknar starf sérfræðings í flóttamannateymi.

Leitað er að áhugasömum, jákvæðum og drífandi starfsmanni sem á auðvelt með samskipti og hefur áhuga á að þjónusta fólk af erlendum uppruna.

Um er að ræða tímabundið starf til eins árs með möguleika á framlengingu.

Leitað er að einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar; Fyrirmyndarþjónusta; Virðing; Áreiðanleiki.

Einnig þarf viðkomandi að vera tilbúin/n að takast á við krefjandi verkefni og búa yfir ríkri samskipta- og skipulagshæfni.

Helstu verkefni og ábyrgð:
Viðtöl og fræðsla til flóttafólks um samræmda móttöku og fyrstu skrefin á Íslandi.
Þarfagreining og pörun sveitarfélaga og flóttafólks í samræmdra móttöku.
Veita sveitarfélögum faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf vegna móttöku flóttafólks.
Veita faglega ráðgjöf við gerð stuðningsáætlana.
Halda utan um og standa fyrir samráði milli þeirra aðila sem koma að móttöku flóttafólks.
Önnur verkefni sem við koma málefnum flóttafólks.

Menntunar- og hæfniskröfur:
Reynsla af starfi með flóttafólki og innflytjendum.
Þekking á málefnum flóttafólks og þeirri þjónustu sem þeim er veitt á Íslandi.
Háskólamenntun á sviði félagsvísinda s.s. félagsráðgjöf. Framhaldsmenntun sem nýtist í starfi æskileg.
Góð íslensku- og enskukunnátta. Önnur tungumálakunnátta er kostur.
Þekking á samræmdri móttöku flóttafólks og félagsþjónustu sveitarfélagana æskileg.
Góð hæfni í mannlegum samskiptum.
Kröfur eru gerðar um hreint sakavottorð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst.

Laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Umsóknarfrestur til og með 31. maí. Nánari upplýsingar veitir Gísli Davíð Karlsson, gisli.d.karlsson@vmst.is, sími: 5154800.

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sækja skal um starfið á vef Alfreðs : https://alfred.is/starf/serfraedingur-i-flottamannateymi

Umsóknarfrestur

31.05.2023

Starf nr.: 230517-08

Skráð á vefinn: 17.05.2023

Stöðugildi: 1

Starfshlutfall: 100%

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni