Vinnumálastofnun

Sérfræðingur í málefnum flóttafólks

Sérfræðingur í málefnum flóttafólks
Vinnumálastofnun óskar eftir að ráða að metnaðarfullan einstakling í flóttamannateymi fjölmenningardeildar. Um er að ræða krefjandi, gefandi og spennandi starf þar sem tækifæri gefst til að hafa áhrif á þjónustu við flóttafólk á landsvísu. Leitað er eftir einstaklingi sem er tilbúinn að sinna ráðgjöf og upplýsingagjöf til innflytjenda, flóttafólks og annarra einstaklinga, stofnana og sveitarfélaga.

Leitað er eftir einstaklingi sem á auðvelt með að tileinka sér gildi Vinnumálastofnunar sem eru; Fyrirmyndarþjónusta, virðing og áreiðanleiki.

Helstu verkefni og ábyrgð
Ráðgjöf og upplýsingar í tengslum við málefni flóttafólks.
Veita faglegar leiðbeiningar og ráðgjöf vegna samræmdar móttöku flóttafólks.
Skráning og innleiðing verkferla varðandi samræmda móttöku og málefni flóttafólks.
Svara fyrirspurnum varðandi málefni flóttafólks.
Upplýsinga- og þarfagreiningarviðtöl fyrir flóttafólk.
Önnur tilfallandi verkefni.
Menntunar- og hæfniskröfur
Háskólanám sem nýtist í starfi, svo sem félagsráðgjöf.
Reynsla af starfi með flóttafólki.
Þekking á félagsþjónustu sveitarfélaganna.
Þekking og reynsla af samræmdri móttöku flóttafólks.
Þekking á málefnum flóttafólks og innflytjenda á Íslandi er kostur.
Góð íslensku- og enskukunnátta, önnur tungumál sem nýtast í starfi eru kostur.
Lipurð og færni í mannlegum samskiptum og teymisvinnu.
Skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð.
Athygli er vakin á því að umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðunin um ráðningu hefur verið tekin. Kröfur eru gerðar um hreint sakavottorð og æskilegt er að viðkomandi geti hafi störf sem fyrst.

Nánari upplýsingar um starfið veita Inga Sveinsdóttir forstöðumaður: inga.sveinsdottir@vmst.is og Hallveig Gróa Ragnarsdóttir mannauðsstjóri: mannaudssvid@vmst.is.

Sækja skal um starfið á vef Alfreðs : https://alfred.is/starf/serfraedingur-i-malefnum-flottafolks-4

Umsóknarfrestur

09.11.2024

Starf nr.: 241028-09

Skráð á vefinn: 28.10.2024

Stöðugildi: 1

Starfshlutfall: 100%

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni