Greiðslustofa atvinnuleysistrygginga
Túnbraut 1-3, 545 Skagaströnd
Sími: 515 4800
greidslustofa@vmst.is
Símaver er opið mán - fim frá kl. 09:00-15:00 & fös frá kl. 09:00-12:00.
Greiðslur atvinnuleysistrygginga/atvinnuleysisbóta fyrir allt landið fara fram hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar. Greitt er 1. virka dag hvers mánaðar og greitt er eftir á fyrir undanfarandi mánuð fyrir tímabilið 1. til 31.
Umsækjendur þurfa að staðfesta atvinnuleit mánaðarlega frá 20. – 25. hvers mánaðar til að tryggja greiðslur um mánaðarmót. Atvinnuleit er staðfest á "Mínar síður" atvinnuleitanda.
- Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit frá 20. - 25. hvers mánaðar eru afgreiddar fyrsta virka dag í mánuði.
- Greiðslur til umsækjenda sem staðfesta atvinnuleit sína milli 25. og 3. næsta mánaðar eru ekki afgreiddar fyrr en 5 virkum dögum eftir mánaðamót.
- Greiðslur til umsækjanda sem staðfesta atvinnuleit sína eftir 3. næsta mánaðar greiðast með útborgun næstu mánaðarmóta.