Hér eru helstu spurningar og svör til þeirra sem nýta sér fæðingarstyrk námsmanna eða eru utan vinnumarkaðar.

Greitt er út fyrsta virka dag fyrir undanfarandi mánuð. Greiðsla vegna töku fæðingarorlofs í apríl er því greitt út 1. maí.

Skila þarf umsókn til Fæðingarorlofssjóðs 3 vikum fyrir áætlaðan fæðingardag eða ef barn er þegar fætt, 3 vikum fyrir upphaf töku fæðingarstyrks.

Flestum gögnum er hægt að skila með tölvupósti á netfangið: faedingarorlof@vmst.is nema læknisvottorðum en þeim verður að skila í frumriti í bréfpósti. Þá er hægt að skila öllum gögnum í bréfpósti á Fæðingarorlofssjóð Strandgötu 1, 530 Hvammstanga eða á næstu þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar.

Fæðingarstyrkur námsmanna er kr. 199.522 vegna barna fæddra árið 2022  og síðar.

Fæðingarstyrkur utan vinnumarkaðar er kr. 87.062  vegna barna fæddra árið 2022 og síðar.

Fæðingarstyrkur námsmanna er 190.747 kr. vegna barna fæddra árið 2021 og síðar. – Fæðingarstyrkur utan vinnumarkaðar er 83.233 kr. vegna barna fæddra árið 2021 og síðar.

Upplýsingar um greiðslur vegna eldri barna má finna með því að smella hér.

Smelltu hér til að skoða reiknivél Fæðingarorlofssjóðs.

Til að nýta persónuafsláttinn þinn þarf að berast eyðublaðið: Beiðni um nýtingu á persónuafslætti, sem finna má á heimasíðunni. Hægt er fylla beiðnina út í tölvu og senda beint með tölvupóst, þ.e. þú þarft ekki að prenta hana út.

Beiðnin þarf að berast fyrir 20. þess mánaðar sem nýtta á persónuafslátt.

Hægt er að nálgast beiðnina hér.

Hægt er að hefja töku fæðingarstyrks í þeim mánuði sem barns fæðist og hann þarf að nýta áður en barn nær 24 mánaða aldri.

Hafir þú verið að vinna með námi síðustu sex mánuði fyrir fæðingu barns þarf að koma tilkynning um tilhögun fæðingarorlof eða staðfesting á starfslokum frá þeim vinnuveitendum.

Hægt er að gera breytingu á áður tilkynntri töku fæðingarstyrks. Sért þú ekki í ráðningu getur þú sent tölvupóst um nýtt tímabil fæðingarstyrks. Ef þú ert í ráðningu þarf að berast eyðublaðið: Breyting og/eða nýtt tímabil á tilhögun fæðingarorlofs. Eyðublaðið þarf að vera undirritað af þér og vinnuveitanda.

Launaseðla frá Fæðingarorlofssjóði má finna í heimabanka þínum undir rafræn skjöl.

Á launaseðli kemur fram m.a. tímabil fæðingarorlofs og ýmis konar frádráttur.

-Allar greiðslur frá Fæðingarorlofssjóði eru staðgreiðsluskyldar en hægt er að nýta persónuafslátt á móti.

-Ekki er hægt að greiða í lífeyrissjóði eða stéttarfélag með greiðslum á fæðingarstyrk.

Ef foreldrar eru ekki giftir eða í skráðri sambúð við fæðingu barns fer móðir ein með forsjá barnsins. Þá þarf forsjárlausa foreldrið að skila inn til staðfestingu á faðerni og samþykki forsjárforeldris fyrir umgengi við barnið á meðan fæðingarorlofi stendur EÐA staðfestingu á sameiginlegri forsjá frá Sýslumanni.

Staðfesting á faðerni/faðernisviðurkenning: Hægt er að staðfesta faðerni með því að skila inn fæðingarvottorði barns þar sem fram kemur faðerni barns. Ath. ekki er nóg að vera skráður lýstur faðir á fæðingarvottorði. Fæðingarvottorð barns má nálgast hjá Þjóðskrá www.skra.is

Til að hægt sé að skrá faðerni á fæðingarvottorði þarf að hafa farið fram faðernisviðurkenning. Það er t.d. hægt með því að fylla út eyðublað um faðernisviðurkenningu sem finna má hjá Þjóðskrá og skila því inn til Þjóðskrár. Eftir það er hægt að sækja um fæðingarvottorð barns. Nánari upplýsingar veitir Þjóðskrá. www.skra.is

Umgenginsréttur: Forsjárforeldri þarf að skrifa undir og staðfesta heimild forsjárlauss foreldris til umgengi við barnið í fæðingarorlofi. Hægt er að nálgast eyðublaðið hér.

Sameiginleg forsjá: Hafa þarf samband við Sýslumann til að ganga frá sameiginlegri forsjá og veitir hann allar nánari upplýsingar. 

https://island.is/s/syslumenn

Vinsamlegast athugið að berast þarf staðfesting á faðerni og samþykki fyrir umgengi EÐA staðfesting á sameiginlegri forsjá. Ekki þarf að senda bæði.

Fullt nám eru a.m.k. 22 feiningar/ECTS einingar í a.mk. sex mánuði síðustu 12 mánuði fyrir fæðingu barns. Þar sem að foreldri þarf að vera í námi í a.m.k. sex mánuði er horft til tveggja síðustu anna fyrir fæðingu barns.

Á þessu eru nokkrar undanþágur t.d. ef foreldri er að ljúka námi eða hefur ný hafið nám, sjá nánar hér.

Eins er hægt að sækja um undanþágu ef móðir hefur ekki getað stundað nám sitt vegna meðgöngutengdra veikinda, sjá nánar með því að smella hér.

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni