Desemberuppbót til atvinnuleitenda
Ásmundur Einar Daðason, félags- og barnamálaráðherra, hefur undirritað reglugerð um greiðslu desemberuppbótar til atvinnuleitenda sem tryggðir eru innan atvinnuleysistryggingakerfisins. Hámarksfjárhæð desemberuppbótarinnar er 86.853 kr. Með hverju barni á framfærslu atvinnuleitanda er greitt aukalega 6% af óskertri desemberuppbót eða 5.211 kr. fyrir barn yngra en 18 ára.