Lokað í dag föstudaginn 24. september vegna starfsdags
Allar þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar verða lokaðar í dag föstudaginn 24. september vegna starfsdags.
Allar þjónustuskrifstofur Vinnumálastofnunar verða lokaðar í dag föstudaginn 24. september vegna starfsdags.
Skráð atvinnuleysi var 5,5% í ágúst og lækkaði úr 6,1% í júlí. Alls fækkaði atvinnulausum að meðaltali um 1.010 sem nemur rúmlega 8% fækkun atvinnulausra frá júlímánuði. Sjá nánar:
Ársfundur Vinnumálsatofnunar verður haldinn 16. september á Hótel Natura. Vinnumálastofnun hefur tekist á við fjölbreytt verkefni og eðlilega hefur starfsemin undanfarið verið lituð af verkefnum í kringum COVID-19. Á ársfundinum verður farið yfir nokkur af þeim verkefnum sem stofnunin stýrði í tengslum við faraldurinn og einnig verður rýnt í áhugaverðar tölur í tengslum við COVID-19. Þá mun rafræn ársskýrsla Vinnumálastofnunar fyrir árið 2020 verða aðgengileg að ársfundi loknum á vef Vinnumálastofnunar. Ársskýrslan gefur m.a. ítarlega mynd af starfsemi stofnunarinnar fyrir árið 2020.
Mímir hélt á dögunum undirbúningsnámskeið fyrir kennara sem munu kenna samfélagsfræðslu fyrir flóttafólk og innflytjendur á vegum Vinnumálastofnunar.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst þar sem 65 starfsmönnum var sagt upp störfum, 52 í sjávarútvegi þar sem gert er ráð fyrir endurráðningu og 13 í sérfræði- tækni- og vísindalegri starfsemi. Uppsagnirnar taka gildi á tímabilinu október til desember 2021.