Námskeið á Höfuðborgarsvæðinu
Ef þú ert í atvinnuleit hjá Vinnumálastofnun á höfuðborgarsvæðinu býðst þér að auka möguleika þína á vinnumarkaði með ýmsum úrræðum, m.a. námskeiðum sem eru þér að kostnaðarlausu.
Námskeiðin sem eru í boði eru fyrir þá atvinnuleitendur sem eru með samþykkta umsókn. Rétt er að benda á að þátttaka ræður hvort af námskeiði verður og því ekki tryggt að námskeið fari af stað.
Minnum á að atvinnuleitendur geta sótt um námssamning samhliða atvinnuleysisbótum og einnig námskeiðsstyrk. Skila þarf inn umsókn áður en námið /námskeið hefst.