Aukinn réttur til fæðingarorlofs
Við ákveðnar aðstæður skapast lengri réttur til fæðingarorlofs eða heimildir til að lengja eða framlengja rétt foreldra til fæðingarorlofs.
Fjölburafæðingar
Fyrir hvert barn sem fæðist á lífiu bætist við 3 mánaða sameiginlegur réttur foreldra til fæðingarorlofs. Hið sama gildir fyrir hvert barn umfram eitt sem er frumættleitt eða tekið í varanlegt fóstur á sama tíma.
Öryggi og heilbrigði á vinnustöðum
Ef öryggi og heilbrigði þungaðrar konu sem er starfsmaður er í hættu samkvæmt sérstöku mati og ekki er unnt að tryggja öryggi hennar þannig að veita þarf henni leyfi frá störfum kann hún að eiga rétt á lengra fæðingarorlofi þann tíma.
Vinnuveitandi þarf áður að hafa reynt að breyta tímabundið vinnuskilyrðum og/eða vinnutíma starfsmannsins eða fela honum önnur verkefni. Sé það ekki unnt eða verið fullreynt getur starfsmaðurinn sótt um lengra fæðingarorlof.
Gögn sem þurfa að berast auk hefðbundinna umsóknargagna:
- Vottorð og rökstuðningur vinnuveitanda um að veita þungaðri konu leyfi frá störfum vegna öryggi og heilbrigði á vinnustöðum.
- Vottorð um væntanlegan fæðingardag.
Veikindi móður á meðgöngu
Sé þungaðri konu nauðsynlegt af heilsufarsástæðum sem tengjast meðgöngunni að leggja niður launuð störf eða hætta þátttöku á vinnumarkaði samkvæmt rétti til atvinnuleysisbóta meira en mánuði fyrir áætlaðan fæðingardag getur hún átt rétt á lengra fæðingarorlofi þann tíma en þó aldrei lengur en 2 mánuði.
Með heilsufarsástæðum er átt við:
- Sjúkdóma sem koma upp vegna meðgöngu og valda óvinnufærni.
- Sjúkdóma, tímabundna eða langvarandi, sem versna á meðgöngu og valda óvinnufærni.
- Fyrirbyggjandi meðferð til að koma í veg fyrir fyrirburafæðingu eða til að vernda heilsu fósturs, enda valdi meðferðin óvinnufærni.
Gögn sem þurfa að berast auk hefðbundinna umsóknargagna:
- Læknisvottorð vegna veikinda móður.
- Vottorð vinnuveitanda vegna veikindaréttar.
Veikindi móður í tengslum við fæðingu
Komi upp alvarleg veikindi hjá móður í tengslum við fæðinguna sem rekja má til fæðingarinnar sjálfrar og hún hefur af þeim völdum verið ófær um að annast um barn sitt í fæðingarorlofinu að mati sérfræðilæknis er heimilt að framlengja fæðingarorlof hennar um allt að 2 mánuði.
Gögn sem þurfa að berast:
- Læknisvottorð vegna veikinda móður.
Veikindi barns eða fötlun
Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarorlofs um allt að 7 mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarlega fötlun sem krefst nánari umönnunar foreldris.
Gögn sem þurfa að berast:
- Vottorð vegna alvarlegs sjúkleika og/eða fötlunar barns.