Hópuppsagnir í október
Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í október.
Engin tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í október.
Skráð atvinnuleysi í september var 3,0% og hækkaði úr 2,9% í ágúst.
Í ljósi umræðna um atvinnuréttindi ríkisborgara Venesúela sem sótt hafa um alþjóðlega vernd í kjölfar úrskurðar Kærunefndar Útlendingamála, vill Vinnumálastofnun koma eftirfarandi á framfæri.
Í ljósi fréttaflutnings Vísis.is um atvinnuþátttöku Venesúelabúa hér á landi þann 2. okt s.l. telur Vinnumálastofnun rétt að taka fram að útgefin bráðabirgðaatvinnuleyfi til íbúa frá Venesúela eru 56 talsins frá 1. janúar 2022. Því er það rangt sem fram kom í nefndri frétt að stór hluti umrædds hóps sé starfandi með slíkt atvinnuleyfi. Stofnunin áréttar það sem fram kom í fréttinni að hún býr ekki yfir neinni tölfræði um atvinnuþátttöku íbúa frá Venesúela sem fengið hafa alþjóðlega vernd eða mannúðarleyfi hér á landi.
Fjórar tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í september þar sem 71 starfsmanni var sagt upp störfum, þar af 21 starfsmanni í flutningum, 19 í rekstri gististaða, 20 í heilbrigðis- og félagsþjónustu og 11 starfsmenn í annarri þjónustustarfsemi. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í desember 2023.
Skráð atvinnuleysi í ágúst var 2,9% og hækkaði úr 2,8% í júlí.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst þar sem 52 starfsmönnum var sagt upp störfum, þar af 27 starfsmönnum í iðnaði og 25 í upplýsingatækni. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í nóvember og desember 2023.
Skráð atvinnuleysi í júlí var 2,8% og minnkaði úr 2,9% í júní.
Smelltu hér til að nálgast mánaðarskýrslu fyrir júlímánuð.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í júlí þar sem 53 starfsmönnum var sagt upp störfum, þar af 31 starfsmanni í fiskvinnslu og 22 í flutningum. Hópuppsagnirnar koma flestar til framkvæmda í október/nóvember 2023.
Skráð atvinnuleysi í júní var 2,9% og minnkaði úr 3,0% í maí.
Vestfirðir 10.júlí – 7.ágúst.
Ein tilkynning um hópuppsögn barst Vinnumálastofnun í júní þar sem 19 starfsmönnum var sagt upp störfum í fiskvinnslu. Uppsagnirnar koma flestar til framkvæmda á tímabilinu ágúst til nóvember 2023.
Þú hefur skoðað 24 fréttir af 45