Við ákveðnar aðstæður skapast lengri réttur til fæðingarstyrks eða heimildir til að lengja eða framlengja rétt foreldra til fæðingarstyrks


Fjölburafæðingar

Fyrir hvert barn sem fæðist á lífi bætist við 3 mánaða sameiginlegur réttur foreldra til fæðingarstyrks. Hið sama gildir fyrir hvert barn umfram eitt sem er frumættleitt eða tekið í varanlegt fóstur á sama tíma.

Veikindi móður í tengslum við fæðingu

Komi upp alvarleg veikindi hjá móður í tengslum við fæðinguna sem rekja má til fæðingarinnar sjálfrar og hún hefur af þeim völdum verið ófær um að annast um barn sitt þann tíma sem fæðingarstyrkur var greiddur að mati sérfræðilæknis er heimilt að framlengja fæðingarstyrk hennar um allt að 2 mánuði.

Gögn sem þurfa að berast:

  1. Læknisvottorð vegna veikinda móður.

Veikindi barns eða fötlun

Heimilt er að framlengja sameiginlegan rétt foreldra til fæðingarstyrks um allt að 7 mánuði ef um er að ræða alvarlegan sjúkleika barns eða alvarlega fötlun sem krefst nánari umönnunar foreldris.

Gögn sem þurfa að berast:

  1. Vottorð vegna alvarlegs sjúkleika og/eða fötlunar barns.

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni