Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi vegna fjarlægðar vinnustaðar og skorts á dagvistun. Staðfest.
Nr. 34 - 2004

 

 

Úrskurður

 

Hinn 26. maí 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr.34/2004.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 17. maí 2004 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 28 apríl 2004.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 29. apríl 2004 um starfslok hennar hjá Y var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, eða misst vinnu af ástæðum sem þeir eiga sjálfir sök á skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

 

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 18. maí 2004.  Í kærunni segist hún mótmæla 40 daga biðtíma og vísar til ástæðna í bréfi sem hún ritaði úthlutunarnefnd.  Samkvæmt bréfi X dags. 5. maí 2004 til úthlutunarnefndar óskar hún eftir undanþágu frá biðtíma atvinnuleysisbóta.  Hún hafi sagt upp vinnu sinni á leikskólanum Y í Reykjavík vegna óviðráðanlegra aðstæðna.  Vegna búsetu hennar í Hafnarfirði hafi hún ekki haft tök á því að snúa aftur til starfa sinna á leikskólanum eftir fæðingarorlof.  Hafi þetta stafað af langri vegalengd milli heimilis hennar og vinnu og skorts á dagvistun fyrir dóttur hennar sem er fædd þann 29. ágúst 2003.  Dagmæður sem hún snéri sér til í fæðingarorlofinu voru ekki tilbúnar til að taka svo ungt barn í vistun í allt að 10 tíma á dag vegna 8 tíma vinnudags og langra ferða til og frá vinnu.

 

3.

 

            Fram kemur að X var í fæðingarorlofi tímabilið  ágúst 2003 til febrúar 2004.  Í málinu liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá Y dags. 3. maí 2004 ásamt  uppsagnarbréfi hennar dags. 14. janúar 2004.  Fram kemur að X starfaði á leikskólanum Y tímabilið 26. mars 2001 þar til hún fór í fæðingarorlof.  Hún hóf störf að nýju þann 20 mars s.l. og starfaði í rúman mánuð eða til 24. apríl er uppsagnarfresti hennar lauk.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

 

2.

 

Ekki verður talið að skortur á dagheimilisplássi sé gild ástæða fyrir starfslokum ef um er að ræða vinnu á venjulegum dagvinnutíma.  Venjulegur dagvinnutími telst vera á tímabilinu frá kl. 08:00 til 17:00 eða 09:00 til 18:00, og verða bótaþegar að vera reiðubúinir að taka vinnu sem fellur innan þessarra tímamarka.  Vinnutími kæranda átti að vera innan þessara tímamarka eða á þeim tíma sem leikskólar eru opnir og bar henni því skylda til að taka því starfi sem um var að ræða samkvæmt ofansögðu.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast ástæður þær sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá  17. maí 2004 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni