Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Ágreiningur um starfshlutfall. Staðfest.
Nr. 91 - 2005
Úrskurður
Þann 23. desember 2005 kvað úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 91/2005.
Málsatvik og kæruefni
1.
Málsatvik eru þau að úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta fyrir Austurland ákvað á fundi sínum sem haldinn var þann 3. nóvember sl. að fella niður bótarétt X í 40 bótadaga með vísan til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar. Ákvörðun þessi var tekin með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði frá 17. október sl. um starfslok X hjá A.
2.
X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi 4. nóvember 2005. Í bréfinu kveðst hún telja að brotið hafi verið á sér er starfshlutfall hennar var fyrirvaralaust fært niður í 50% en starfshlutfall hennar hafði verið tæp 70% fyrstu níu mánuði ársins. Hún hafi undirritað ráðningarsamning í lok apríl. Í honum hafi komið fram að um væri að ræða 50% starfshlutfall. X segir að sér hafi einfaldlega sést yfir þetta þar sem hún hafi verið í leit að meiri vinnu. Í byrjun september hafi hún hins vegar einungis verið sett í 50% starfshlutfall samkvæmt vaktaskipulagi. Þegar hún hafi spurst fyrir um ástæðuna hafi henni verið tjáð að hún hafi einungis verið ráðin í 50% starf. Hún hafi verið ósátt við þetta og óskað eftir að fá a.m.k. 65% starf, en því hafi verið hafnað. Hún hafi orðið miður sín við þetta og gengið út. X telur sig hafa verið beitta miklum órétti og segist ekki hafa getað hugsað sér að fara aftur til starfa hjá A. X fer fram á að úrskurðarnefndin felli ákvörðun úthlutunarnefndarinnar úr gildi.
Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá A frá 18. október 2005. Þar kemur fram að X hafi verið í 63,4 % starfshlutfalli frá 1. júní til 31. desember 2003, 68% starfshlutfalli allt árið 2004 og 69,4% starfshlutfalli frá 1. janúar til 30. september 2005. Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.
Niðurstaða
1.
Samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, veldur það missi bótaréttar í 40 bótadaga ef umsækjandi um atvinnuleysisbætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna. Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997, um greiðslu atvinnuleysisbóta, en þar segir eftirfarandi:
Ef umsækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tl. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, séu starfslok tilkomin vegna einhverra eftirtalinna atvika:
a. Maki umsækjanda hafi farið til starfa í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja búferlum.
b. Uppsögn má rekja til þess að umsækjandi, að öðru leyti vinnufær, hefur af heilsufarsástæðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því tilskildu að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknisvottorði þessu til staðfestingar.
Kjósi úthlutunarnefnd að beita heimild 4. tl. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í öðrum tilvikum en að ofan greinir, skal hún tiltaka sérstaklega í ákvörðun sinni þau atvik og sjónarmið sem ákvörðun byggist á.
2.
Kærandi kveðst hafa sagt upp starfi sínu þar sem starfhlutfall hennar hafi verið lækkað úr 69,4% í 50% og ósk hennar um hærra starfshlutfall hafi verið neitað. Samkvæmt ráðningarsamningi sem hún hafði undirritað var hún ráðin í 50% starfshlutfall. Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997. Hefur ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki talist falla undir gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum.
Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta fyrir Austurland um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, staðfest.
Úrskurðarorð:
Staðfest er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta fyrir Austurland frá 3. nóvember 2005 um að X skuli missa rétt til atvinnuleysisbóta í 40 bótadaga.
Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta
Linda Björk Bentsdóttir
formaður
Elín Blöndal Arnar Þór Jónsson
Til baka