Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Ágreiningur um laun. Staðfest.
Nr. 90 - 2005

Úrskurður

 

Þann 23. desember 2005 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 90/2005.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum sem haldinn var þann 25. október sl. umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 12. október 2005.  Jafnframt ákvað nefndin að réttur X til atvinnuleysisbóta skyldi falla niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils með vísan til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði frá 30. september sl. um starfslok X hjá B.

 

2.

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi 27. október 2005.   Í bréfinu kveðst hún hafa sagt upp vegna þess að hún hafi verið svikin um launahækkun sem hún óskaði eftir.  Af þessum sökum finnist henni ekki réttlát að vera sett á bið eftir bótum.  Hún hafi verið með kr. 180.000 í föst laun og beðið yfirmann sinn um launahækkun upp í kr. 200.000.  Hún hafi hins vegar aldrei fengið þessa launahækkun og hafi yfirmaður hennar virst koma af fjöllum er hún hafi minnst á þetta við hann. 

            Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá B frá 4. október 2005.  Þar kemur fram að X hafi starfað hjá fyrirtækinu frá 15. janúar til 30. september 2005 við afgreiðslustörf.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum.  Samkvæmt bréfi til úthlutunarnefndar frá 18. október 2005 segist X hafa farið fram á launahækkun eftir fimm mánaða starf og haldið að hún hafi fengið hana.  Eftir átta mánuði hafi hins vegar ekkert gerst og hafi hún þá samstundis sagt upp.  Hún hafi þó ekkert haft í höndunum um þessa launahækkun.

 

 

 


 

Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerðar nr. 545/1997, um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta, en þar segir eftirfarandi: 

 

 

Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

2.

 

Kærandi kveðst hafa sagt upp starfi sínu þar sem hún hafi ekki fengið umbeðna launahækkun. Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997. Hefur ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki talist falla undir gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum.

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Staðfest er ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 25. október 2005 um að X skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bóta­daga  í upphafi bótatímabils.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni