Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi. Eigin sök. Staðfest.
Nr. 89 - 2005

Úrskurður

 

Þann 23. desember 2005 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 89/2005.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum sem haldinn var þann 17. október sl. umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 13. september 2005.  Jafnframt ákvað nefndin að réttur X til atvinnuleysisbóta skyldi falla niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils með vísan til 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði frá 16. september sl. um starfslok X hjá A.

 

2.

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi mótt. 9. nóvember 2005.   Í bréfinu segir hún að atvik hafi verið með þeim hætti að ef hún hefði ekki sagt sjálf upp þá hefði henni verið sagt upp af stofnuninni.  Hún hafi starfað sem forstöðumaður á heimili fyrir fatlaða og vegna atvika sem hafi komið upp í starfseminni hafi verið útséð um að hún gæti starfað þar áfram.  Henni hafi verið boðið að velja á milli þess að segja sjálf upp eða vera sagt upp.  Hún hafi tekið þann kost að skrifa undir uppsagnarbréf sem hafði verið útbúið fyrir hana vegna þess að hún taldi það líta betur út fyrir að hafa sjálf sagt upp varðandi vinnuleit.  Þær ástæður sem legið hafi að baki og urðu til þess að starfslok voru óumflýjanleg séu hins vegar trúnaðarmál milli beggja aðila sem beri að virða.  Af þessum sökum telur X að fella eigi úr gildi ákvörðun úthlutunarnefndar um 40 daga bið eftir atvinnuleysisbótum.  Að auki segist X vilja taka fram að starfslok hennar hafi verið þann 11. ágúst sl.  Hún hafi hins vegar ekki skráð sig hjá vinnumiðlun fyrr en 13. september vegna þess að henni hafi verið sagt af samstarfsfólki að hún þyrfti að bíða í fjórar vikur áður en hún gæti byrjað að skrá sig.  Bið eftir greiðslu bóta sé því liðin og vel það.  X fer fram á að fá greiddar atvinnuleysisbætur frá skráningardegi þann 13. september sl. 

Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá A.  Þar kemur fram að X starfaði hjá stofnuninni í 100% starfshlutfalli frá 15. september 2004 til 31. ágúst 2005.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum. 

 

 


Niður­staða

 

1.

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerðar nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta, en þar segir eftirfarandi: 

 

Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tl. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

 

2.

 

Að sögn kæranda var ástæða uppsagnar hennar innanhúsmál sem ákveðið var að leysa á þennan hátt, þ.e.a.s. að hún segði upp.  Kærandi segir að ef hún hefði ekki sagt upp þá hefði henni verið sagt upp af stofnuninni.  Úrskurðarnefndin hefur aflað sér gagna um ástæður starfsloka frá kæranda og vinnuveitanda og er ekki ágreiningur um þær.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997. Með hliðsjón af gögnum málsins verður ekki annað lagt til grundvallar en að kærandi hafi misst vinnu af ástæðum sem hún sjálf átti sök á í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, staðfest.

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Staðfest er ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 17. október 2005 um að X skuli missa rétt til at­vinnu­leysis­bóta í 40 bóta­daga  í upphafi bótatímabils.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni