Ótímabundin niðurfelling bótaréttar. Hafnar atvinnutilboði vegna skorts á barnagæslu. Ítrekun. Fellt úr gildi. 40 daga niðurfelling ákveðin í staðinn. Ekki ítrekun.
Nr. 8 - 2006

Úrskurður

 

Hinn 21. febrúar 2006 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 8/2006.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum sem haldinn var þann 19. september  2005 að fella ótímabundið niður rétt X til atvinnuleysisbóta.  Ákvörðun þessi var tekin á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997, um at­vinnu­leysis­tryggingar. Ákvörðunin var tekin með vísan til þess að hún hafnaði atvinnutilboði frá H.   Í ákvörðun úthlutunarnefndar er tekið fram að um ítrekun væri að ræða þar sem þann 23. júní 2005 hafi hún fengið 40 daga niðurfellingu bótaréttar vegna höfnunar atvinnutilboðs í mötuneyti.

 

2.

 

X kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi, dags. 24. nóvember 2005.  Í bréfinu segir hún að sér hafi verið boðið starf þar sem vinnutíminn átti að vera frá kl. 8:00 til 14:00.  Hún hafi ekki getað tekið starfinu þar sem hún hafi einungis barnagæslu frá kl. 9:00 á morgnana.  Að auki hafi verið um 75% starf að ræða en hún sé að leita að 100% starfi.  75% starf dugi henni ekki og þar sem bótahlutfall hennar sé aðeins 80% þá hefði hún ekki getað fengið hlutabætur á móti.  X segir einnig að hún sé búin að margtaka það fram á vinnumiðlun að hún sé að leita sér að vinnu frá kl. 9:00 til 17:00.

Í gögnum málsins liggur fyrir atvinnutilboð, dags. 24. ágúst 2005 um starf við ræstingar á H.  Vinnutími var sagður frá kl. 8:00 til 14:00.  Samkvæmt atvinnurekanda sagðist X ekki geta byrjað að vinna kl. 8:00 þar sem hún hefði einungis barnagæslu frá kl. 9:00.  Einnig liggur fyrir atvinnutilboð 23. júní 2005 um starf í mötuneyti B ehf.  Vinnutíminn var sagður frá kl. 10:30 til 18:30.  Að sögn atvinnurekanda sagðist X aðeins hafa barnagæslu til kl. 17:00. 

Niður­staða

 

1.

 

Samkvæmt 1. mgr. 1. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, eiga launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar sem verða atvinnulausir rétt á bótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögunum, enda séu þeir í atvinnuleit og fullfærir til vinnu.  Samkvæmt 6. tölul. 2. gr. laganna er skilyrði bótaréttar að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra almennra starfa.

Þetta skilyrði er áréttað frekar í 1. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 en þar segir eftirfarandi:

 

,,Til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þarf umsækjandi í atvinnuleit samkvæmt 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a.         Að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra almennra starfa, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör í samræmi við 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980.

b.         Að vera fullfær til vinnu.

c.         Að fylgja starfsleitaráætlun sem gerð hefur verið á vegum svæðisvinnumiðlunar, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, eða skrá sig vikulega hjá svæðisvinnumiðlun/skráningaraðila.

           

1. mgr. 13. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar, hljóðar svo:

Það veldur missi bótaréttar að neita starfi sem býðst fyrir milligöngu svæðisvinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör öll í samræmi við 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrissréttinda nr. 55/1980.

           

5. mgr. 13. gr. laganna hljóðar svo:

            Um missi bótaréttar samkvæmt þessari grein gilda að öðru leyti ákvæði 4. tölul. 5. gr.

 

            Í 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er mælt fyrir um hvaða einstaklingar eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum.  Ákvæði 4. tölul. 5. gr. gr. hljóðar svo:

Þeir sem hafa sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst vinnu af ástæðum sem þeir sjálfir eiga sök á.  Réttur til bóta samkvæmt þessum tölulið fellur niður í 40 bótadaga í fyrsta sinn og skerðist bótatímabil sem því nemur.   Missi maður aftur rétt til bóta öðlast hann ekki bótarétt að nýju, nema hann sanni að hann hafi stundað vinnu í samfellt sex vikur eftir að hann missti bótaréttinn.

 

2.

 

Kærandi hafnaði atvinnutilboði um starf við ræstingar hjá H frá kl. 8:00 til 14:00 vegna þess að hún hafði ekki barnagæslu fyrir kl. 9:00. 

Úthlutunarnefnd byggir í ákvörðun sinni frá 19. september 2005 á því að um ítrekun hafi verið að ræða þar sem kærandi hafði áður hafnað atvinnutilboði um vinnu hjá mötuneyti frá kl. 10:30 til 18:30 þar sem hún hefði ekki barnagæslu eftir kl. 17:00.  Í máli þessu verður hins vegar að líta til þess að kærandi kærði ákvörðun úthlutunarnefndar frá 23. júní 2005, um niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga vegna framangreindar höfnunar á tilboði um atvinnu í mötuneyti, til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta.  Úrskurðarnefndin felldi þessa ákvörðun úthlutunarnefndar úr gildi með úrskurði, dags. 3. október 2005, þar sem vinnutíminn var lengri en venjulegur dagvinnutími eða til 18:30.  Ekki verður talið að skortur á dagheimilisplássi sé gild ástæða fyrir starfslokum eða höfnun á vinnu ef um er að ræða vinnu á venjulegum dagvinnutíma.  Venjulegur dagvinnutími telst vera á tímabilinu frá kl. 08:00 til 18:00, og verða bótaþegar að vera reiðubúnir að taka vinnu sem fellur innan þessara tímamarka, en sú vinna sem kæranda var boðin hjá H gerði það.

Í umsókn um atvinnuleysisbætur felst yfirlýsing um að umsækjandi óski eftir því að fá greiddar atvinnuleysisbætur meðan á atvinnuleit sinni stendur.  Sú atvinnuleit má almennt ekki vera háð þeim fyrirvara að aðeins ákveðnar tegundir starfa eða ákveðinn vinnutími komi til greina þannig að önnur störf séu útilokuð, sbr. 6. tölul. 1. mgr. 2. gr. laga nr. 12/1997 þar sem segir að þeir sem eiga rétt til bóta samkvæmt lögunum skuli vera reiðubúnir til að ráða sig til allra almennra starfa. Að mati úrskurðarnefndar bar kæranda að þessu sinni að þiggja framkomið atvinnutilboð.  Þar sem ákvörðun úthlutunarnefndar frá 23. júní 2005 um 40 daga niðurfellingu bótaréttar vegna höfnunar kæranda á atvinnutilboði í mötuneyti var felld úr gildi með framangreindum úrskurði frá 3. október 2005 hefur hún ekki réttaráhrif til ítrekunar í máli þessu, sbr. lokamálsl. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997.

 

Að teknu tilliti til ofangreinds er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um ótímabundna niðurfellingu bótaréttar kæranda felld úr gildi.  Kærandi skal þess í stað sæta niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga með vísan til 1. mgr. 13. gr. sbr. 4. tölulið 5. gr. laga nr. 12/1997, um atvinnuleysistryggingar.  

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Felld er úr gildi ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 19. september 2005 um ótímabundna niðurfellingu bótaréttar X.  X skal þess í stað sæta niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni