Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Fellt úr gildi. Var búin að fá aðra vinnu.
Nr. 16 - 2007

 

Úrskurður

 

Hinn 4. apríl 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­trygginga og vinnumarkaðsaðgerða upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 16/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

Málavextir er þeir að úthlutunarnefnd atvinnuleysistrygginga ákvað á fundi sínum þann 21. febrúar 2007 að réttur X til atvinnuleysisbóta skyldi falla niður í 40 bótadaga á grundvelli 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun þessi var tekin með vísan til þess að X hafnaði atvinnutilboði frá I ehf. frá 1. febrúar 2007.

 

2.

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi mótt. 21. mars 2007.   Í bréfi sínu segist  hún hafa hafnað vinnuviðtali hjá I um 50% starf sökum þess að hún hafi fengið mun betra starf hjá S.  Vinnustaðurinn sé í 5 mínútna gangfæri frá heimili hennar.  Þetta henti sér mjög vel þar sem hún hafi ekki bílpróf.  Hún hafi möguleika á meiri vinnu og sveigjanlegri vinnutíma.  Hún hafi unnið áður hjá S sem vaktstjóri.  Hún hafi nú þegar leyst af sem vaktstjóri og síðan muni hún fá fullt starf í vor.

            Samkvæmt tölvubréfi frá S hf. er staðfest að kærandi hafi hafið 40% starf hjá fyrirtækinu þann 5. febrúar 2007.  Í gögnum málsins kemur fram að hún fékk atvinnutilboðið frá I þann 1. febrúar 2007.  Einnig liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá S hf. frá 20. nóvember 2006.  Þar kemur fram að kærandi starfaði hjá fyrirtækinu á árinu 2004, fyrst í 100% starfshlutfalli og síðar í 82% starfshlutfalli.

 

 

Niður­staða

 

1.

Samkvæmt 13. og 14. gr. laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, er skilyrði fyrir atvinnuleysistryggingum launamanna að þeir séu í virkri atvinnuleit.  Í 14. gr. laganna er kveðið á um virka atvinnuleit.  Þar segir m.a.eftirfarandi:

 

,,Sá telst vera í virkri atvinnuleit sem uppfyllir eftirtalin skilyrði:

a.  er fær til flestra almennra starfa,

b.  hefur frumkvæði að starfsleit og er reiðubúinn að taka hvert það starf sem greitt er fyrir samkvæmt lögum og kjarasamningum, sbr. 1. gr. laga nr. 55/1980, um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda og uppfyllir skilyrði annarra laga,

c. hefur vilja og getu til að taka starfi án sérstaks fyrirvara,

d.  er reiðubúinn að taka starfi hvar sem er á Íslandi,

e.  er reiðubúinn að taka starfi óháð því hvort um fullt starf eða hlutastarf er að ræða eða vaktavinnu.

 

Í 57. gr. er kveðið á um viðurlög við því að hafna starfi eða atvinnuviðtali og segir þar eftirfarandi í 1. 3. mgr.:

Sá sem hafnar starfi sem honum býðst með sannanlegum hætti eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila.  Hið sama á við um þann sem hafnar því að fara í atvinnuviðtal vegna starfs sem honum býðst með sannanlegum hætti eða sinnir ekki atvinnuviðtali án ástæðulausrar tafar.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á viðurlagatímanum skv. 1. mgr.  Hafni hann starfi eða hafni því að fara í atvinnuviðtal á þeim tíma getur komið til ítrekunaráhrifa skv. 61. gr.

Taki hinn tryggði starfi sem ekki er hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. stendur falla viðurlögin niður eftir að hinn tryggði hefur starfað í a.m.k. tíu virka daga áður en hann sækir aftur um atvinnuleysisbætur, enda hafi hann sagt starfinu lausu eða misst það af gildum ástæðum.  Vari starfið í skemmri tíma, hann hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst það af ástæðum sem hann á sjálfur sök á heldur viðurlagatíminn áfram að líða þegar hinn tryggði sækir aftur um atvinnuleysisbætur, sbr. einnig 61. gr.

 

2.

Kærandi fékk tilboð þann 1. febrúar 2007 um 50% starf hjá I.  Kærandi fór ekki í atvinnuviðtalið þar sem hún var búin að fá 40% starf hjá S hf. sem henni leist betur á.  Kærandi segist hafa möguleika á að fá hærra starfshlutfall og að hún muni hefja fullt starf í vor.  Samkvæmt upplýsingum frá atvinnurekandanum stendur þó ekki til að kærandi fari í hærra starfshlutfall.

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta eru ástæður þær sem kærandi gefur fyrir höfnun sinni gildar. 

Með vísan til framanritaðs er það niðurstaða úrskurðarnefndar að fella beri úr gildi ákvörðun úthlutunarnefndar um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 1. mgr. 57. gr. laga nr. 54/2006.

 

Úr­skurðar­orð

 

Felld er úr gildi ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysistrygginga frá 21. febrúar 2007 um að X skuli sæta niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga. 

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­trygginga og vinnumarkaðsaðgerða

 

Linda Bentsdóttir

for­maður

 

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni