Umsókn um tekjutengdar atvinnuleysisbætur hafnað. Staðfest.
Nr. 64 - 2006

Úrskurður

 

Hinn 26. september 2006 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 64/2006.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

            Málsatvik eru á þá leið að úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta nr. 2 fyrir höfuðborgarsvæðið synjaði á fundi sínum sem haldinn var þann 2. ágúst sl. umsókn Y um  tekjutengdar atvinnuleysisbætur.

 

2.

            Y kærði framangreinda ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi 18. september 2006.  Í bréfi sínu segist hann sækja um undanþágu frá bráðabirgðaákvæði nr. I í lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar sem tóku gildi þann 1. júlí sl.  Í ákvæðinu er einstaklingum sem einhvern tímann hafa verið skráðir atvinnulausir fyrir 15. nóvember 2005 gert ókleift að sækja um tekjutengingu atvinnuleysistrygginga.  

Y segist sækja um undanþágu á eftirfarandi forsendum:

1.          Langt sé síðan hann hafi verið skráður atvinnulaus.  Hann hafi einungis verið skráður atvinnulaus í eitt skipti á undan núverandi atvinnuleysi og það hafi verið árið 1995.

2.          Hann hafi þegið mjög lága upphæð þar sem hann var aðeins atvinnulaus í 18 daga.

3.          Hann hafi ekki verið á fullum bótum þar sem hann hafði verið námsmaður.

4.          Hann hafi borgað skatta í mörg ár og eigi því rétt á þessari tengingu eins og aðrir þegnar þjóðfélagsins.

Í öðru lagi segist Y hafa efasemdir um þessa lagasetningu.  Honum finnist líklegt að þau uppfylli ekki jafnræðisreglu stjórnarskrárinnar.  Það sé ekki hægt að styðja þetta bráðabirgðaákvæði með málefnalegum rökum.

Í þriðja lagi segist Y vera mjög ósáttur við það að hafa þegið einhverja smásummu frá ríkinu fyrir mörgum árum án þess að vita hvaða afleiðingar það hefði.  Hann hafi líklega þegið innan við 20 þúsund krónur á sínum tíma, en nú sé hann að tapa rúmlega 200 þúsund krónum.  Hugsanlega brjóti þetta einnig einhver lög en hann sé ekki nægilega lagafróður til að geta bent á það.

           

Í gögnum málsins liggur yfirlit yfir greiðslusögu Y.  Þar kemur fram að hann hafi þegið atvinnuleysisbætur tímabilið 2. til 25. janúar 1995.  Síðan sækir hann fyrst aftur um atvinnuleysisbætur þann 15. maí 2006.

 

Niður­staða

 

1.

Ný lög um atvinnuleysistryggingar, nr. 54/2006, tóku gildi þann 1. júlí sl.   32. gr. laganna hefur að geyma nýmæli.  Samkvæmt ákvæðinu öðlast sá sem telst tryggður rétt til tekjutengdra atvinnuleysisbóta í allt að þrjá mánuði frá þeim tíma er grunnatvinnuleysisbætur hafa verið greiddar í samtals 10 virka daga.  Ákvæði þetta tekur til þeirra einstaklinga sem sækja um atvinnuleysisbætur eftir gildistöku laganna.  Tekjutengdar atvinnuleysisbætur skulu samkvæmt lögunum nema 70% af meðaltali heildarlauna, en þó að hámarki kr. 185.400 á mánuði, og skal miða við sex mánaða tímabil sem hefst tveimur mánuðum áður en umsækjandi varð atvinnulaus.

Bráðabirgðaákvæði I fjallar um þá sem sækja um atvinnuleysisbætur í tíð fyrri laga nr 12/1997, um atvinnuleysisbætur.  Ákvæðið hljóðar svo:

Þeim sem hefur í fyrsta skipti skráð sig atvinnulausan hjá svæðisvinnumiðlun 15. nóvember 2005 eða síðar og er skráður atvinnulaus 1. júlí 2006 er heimilt að sækja um atvinnuleysisbætur skv. 9. gr. laga þessara fyrir 1. september 2006 og fer þá um rétttindi hans og skyldur innan atvinnuleysistryggingakerfisins samkvæmt  lögum þessum.  Við úrreikninga á tekjutengdum atvinnuleysisbótum skv 32. gr. skal líta á það tímabil sem hann var skráður atvinnulaus sem tímabil skv. 23. gr.

 

9. gr. laganna fjallar almennt um umsókn um atvinnuleysisbætur.  23. grein laganna fjallar um geymdan bótarétt og kveður á um að sá sem hverfur af vinnumarkaði geti geymt þegar áunna atvinnuleysistryggingu í allt að 24. mánuði.

 

2.

            Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur  15. maí 2006 eða fyrir gildistöku nýrra laga um atvinnuleysistryggingar nr. 54/2006 l. júlí sl. og gat því sótt um tekjutengdar atvinnuleysisbætur samanber bráðabirgðaákvæði I að uppfylltum þar tilgreindum skilyrðum. Eitt skilyrðið er að bótaþegi hafi ekki þegið atvinnuleysisbætur fyrir 15. nóvember 2005.  Kærandi uppfyllti ekki þetta skilyrði þar sem hann hafði áður þegið atvinnuleysisbætur fyrir 15. nóvember 2005.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta eru því ekki lagaskilyrði til að verða við ósk kæranda um tekjutengdar atvinnuleysisbætur. Lögin veita svigrúm fyrir þá sem voru á bótum fyrir gildistöku laganna til að sækja um tekjutengingu.  Tekjutenging getur mest varað í þrjá mánuði á hverju bótatímabili.  Ef kærandi kemur aftur inn á skrá getur hann nýtt sér þennan rétt að fullu.

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 2 um að synja kæranda um tekjutengdar atvinnuleysisbætur staðfest með vísan til bráðabirgðaákvæðis nr. I í lögum nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Staðfest er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 2  fyrir höfuðborgarsvæðið frá 2. ágúst 2006 um að synja umsókn Y um tekjutengdar atvinnuleysisbætur.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Linda Bentsdóttir

for­maður

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni