Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi sínu vegna óánægju með yfirmenn og laun. Staðfest.
Nr. 24 - 2007

Úrskurður

 

Þann 21. júní 2007 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­trygginga og vinnumarkaðsaðgerða upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 24/2007.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að Greiðslustofa Vinnumálastofnunar samþykkti þann 25. apríl 2007 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 16. apríl 2007.  Bótaréttur hennar var hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils.  Ákvörðun þessi var tekin á grundvelli 1. mgr. 54 gr. laga nr. 54/2006.  Ákvörðunin var tekin með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði um starfslok hennar hjá H hf.

 

2.

 

X kærði ákvörðun Vinnumálastofnunar til úrskurðarnefndar atvinnuleysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða með bréfi dags. 22. maí 2007.   Í bréfi sínu segist hún alltaf hafa greitt tryggingagjald af launum sínum.  Hún hafi sótt um atvinnuleysisbætur í lok janúar sl. og þegið bætur í einn mánuð.  Þá hafi hún hafið störf á litlu hóteli.  Strax fyrstu vikuna hafi hún horft upp á hörkulega framkomu tveggja yfirmanna sinna, sem einnig eru eigendur, við starfsfólkið.  Mikil óánægja hafi ríkt meðal starfsfólksins og allir voru að leita sér að öðrum störfum.  Hún hafi reynt að láta þetta ekki hafa áhrif á sig.  Hún hafi ekki fengið almennilega þjálfun.  Eigendurnir hafi verið lítið á staðnum og skilið hana eina eftir með ábyrgð á hótelinu og þernunum yfir mikla ferðamannahelgi.  Við fyrstu útborgun hafi komið í ljós að tímakaupið hafi verið lægra en henni hafi verið lofað í upphafi.  Það hafi skeikað um kr. 30-40 þúsund.  Hótelstjórinn hafi misst stjórn á skapi sínu gagnvart henni fyrir framan gesti hótelsins eitt sinn er gestir höfðu verið með ónæði. Síðar hafi komið í ljós að misskilningurinn hafi verið hans.  Eftir þetta atvik hafi hún sagt upp starfi sínu með það í huga að festa sig ekki í þriggja mánaða uppsagnarfresti og losna úr starfinu fyrir sumarvertíðina.

 Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá H hf. dags. 20. apríl 2007.  Þar kemur fram að kærandi starfaði hjá fyrirtækinu við gestamóttöku tímabilið 18. mars til 20. apríl 2007.  Ástæða starfsloka er sögð sú að hún hafi sjálf sagt upp störfum. Einnig liggur fyrir uppsagnarbréf frá kæranda dags. 9. apríl 2007 þar sem hún segir upp starfi sínu á H með einnar viku uppsagnarfresti.

 


Niður­staða

 

1.

 

Ákvæði 54. gr.  laga nr. 54/2006, um atvinnuleysistryggingar, fjallar um þau atvik er starfi er sagt upp án gildra ástæðna.  Í 1. og 2. mgr. 54. gr. segir eftirfarandi:

Sá sem telst tryggður samkvæmt lögum þessum en hefur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að 40 dögum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir frá móttöku umsóknar um atvinnuleysisbætur.  Hið sama gildir um þann sem missir starf af ástæðum sem hann á sjálfur sök á.

Hinn tryggði skal uppfylla skilyrði laga þessara á biðtímanum skv. 1.mgr.

 

           

2.

 

Kærandi var ráðin í gestamóttöku á H.  Kærandi kveðst hafa verið ósáttur við framkomu yfirmanna sinna við sig og annað starfsfólk.  Auk þess var hún óánægð með launin, og sagði  í kjölfarið upp störfum.

Almenn lagarök mæla með því að ákvæði 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar um niðurfellingu bótaréttar skuli fyrst og fremst beitt þegar viðkomandi einstaklingur segir starfi sínu lausu og sækir í kjölfar þess um atvinnuleysisbætur.  Í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar er orðalagið gildar ástæður skýrt þröngt, sem þýðir í raun að fá tilvik falla þar undir.  Almennt flokkast ágreiningur milli starfsmanna og vinnuveitanda, s.s. um launakjör, vinnutíma og/eða aðstæður á vinnustað ekki sem gildar ástæður samkvæmt framangreindum reglum. 

Það er mat úthlutunarnefndar að ástæður þær sem kærandi gefur upp fyrir uppsögn sinni séu ekki gildar í skilningi 1. mgr. 54. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun Vinnumálastofnunar um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga staðfest með vísan til 1. mgr. 54. gr. laga nr. 54/2006.

 

 

Úr­skurðar­orð

 

Staðfest er ákvörðun Greiðslustofu Vinnumálastofnunar frá 25. apríl 2007 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysistrygginga og vinnumarkaðsaðgerða

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

 

Elín Blöndal                              Arnar Þór Jónsson

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni