Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga
Nr. 30 - 2003

 

 

 

Úrskurður

 

Þann 7. apríl 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 30/2003.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Málsatvik eru þau að út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta fyrir Norðurland eystra samþykkti á fundi sínum þann 21. janúar 2003 umsókn Bdags. 1. janúar 2003 um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði, dags 13. janúar 2003, um starfslok hans hjá X var réttur hans til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.

 

 

2.

 

B kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 21. mars 2003.  Í bréfi sínu segist hann hafa sagt upp vinnu hjá X vegna þess að hann hafði fengið loforð fyrir nýju starfi hjá Z, heimili aldraðra á Y.  Hann hafi hætt um áramótin með lögbundnum fyrirvara, en af óviðráðanlegum ástæðum hafi tekið lengri tíma að móta starfið og fá niðurstöðu hvað það varðaði.  Starfið sem um ræðir varð ekki að veruleika 1. janúar eins og áætlað var, heldur 3. mars. Þetta hafi verið atburðarás sem hann hafi ekki getað haft nokkur áhrif á.

 

3.

 

Í gögnum málsins kemur fram að B var í 100% starfshlutfalli hjá X. tímabilið 1. janúar 2002 til 31. desember 2002 er hann sagði sjálfur upp störfum.  Haft var samband við forstöðukonu Z, dvalarheimili aldraðra á Y, vegna þessa máls.  Hún kannaðist ekki við að starfinu hafi verið lofað frá áramótum.  Um nýtt starf væri að ræða.  Fyrst í haust hafi verið rætt um að koma því á laggirnar, en ekki orðið úr því fyrr en 1. mars s.l. 

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölu. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

2.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.   Kærandi getur ekki lagt fram nein gögn um vinnutilboð það sem olli því að hann sagði starfi sínu hjá X  Kærandi hætti störfum um áramótin 2002-2003 og hóf störf í nýju starfi þann 1. mars s.l. Samkvæmt hinum nýja vinnuveitanda hafi ekki verið lofað starfi frá áramótum.  Nýtt starf hafi verið rætt en um engar ákveðnar tímasetningar hafi verið að ræða.  Svo virðist sem að um óljósar umræður um nýtt starf hafi verið að ræða án þess að lofað hafi verið ráðningu frá ákveðnum tíma.     

 

Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta fyrir Norðurland eystra um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta á Norðurlandi eystra frá 21. janúar 2003 um að bótaréttur B til atvinnuleysisbóta skuli felldur niður í 40 bótadaga er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni