Endurgreiðsla ofgreiddra bóta.
Nr. 40 - 2003

Úrskurður

 

Hinn 19. maí 2003 kvað úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 40/2003.

 

Málsatvik og kæruefni

 

1.

Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið ákvað á fundi sínum þann 22. apríl 2003 að A bæri að endurgreiða fjárhæð sem næmi tvöföldum greiddum atvinnuleysisbótum í 20 bótadaga í ágúst 2002 með bótalausri skráningu hjá Vinnumiðlun höfuðborgarsvæðisins.  Að auki ákvað úthlutunarnefndin að fella niður bótarétt A í tvo mánuði. Úrskurður nefndarinnar var kveðinn upp með vísan til 15. og 27. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 og 14. gr. reglugerðar nr. 545/1997.   27. gr. laganna kveður á um allt að tvöfaldri endurgreiðslu ofgreiddra bóta hafi maður aflað sér þeirra með því að gefa rangar eða villandi upplýsingar eða leyna upplýsingum um hagi sína.  14. gr. rgl. nr. 545/1997 kveður á um heimild Atvinnuleysistryggingasjóðs til skuldajöfnunar útistandandi kröfu gegn atvinnuleysisbótum.  15. gr. laga um atvinnuleysistryggingar kveður á missi bótaréttar í 2-6 mánuði við fyrsta brot.  Ákvörðun nefndarinnar var byggð á upplýsingum frá Ríkisskattstjóra um að A hefði verið í 100% starfi á X ágúst 2002 samhliða því sem hún þáði atvinnuleysisbætur.

 

2.

A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi mótteknu dags. 19. mars 2003. Í bréfi sínu segist hún fara fram á að henni verði greiddar atvinnuleysisbætur frá þeim tíma er þær voru stöðvaðar þar til hún fær vinnu.  Hún segist hafa unnið í september 2002 í hlutastarfi hjá Z hf.  Þann mánuð hafi hún unnið alls 141 vinnustundir og greitt fullan skatt af laununum.  Eftir þennan mánuð hafi hún hætt að vinna, bæði hjá Z hf. og á X.  Henni hafi ekki verið boðnar fleiri vaktir á X, aðallega vegna tungumálaörðugleika.  Hún hafi verið atvinnulaus síðan.   A leggur fram launaseðla máli sínu til stuðnings.

 

 

 

 

3.

            Í yfirliti frá Ríkisskattstjóra dags. 14. maí 2003 kemur fram að A þáði laun frá X  ehf. fyrir ágústmánuð 2002.  Samkvæmt launamiða 2003 vegna launagreiðslna 2002 þáði A kr. 162.150 í laun frá X  á árinu 2002.  Haft var samband við X og að sögn vaktstjóra hefur hún verið starfandi þar meira og minna síðast liðin tvö ár en hætti alveg fyrir tveimur mánuðum síðan.

 

 

Niðurstaða

 

1.

Lög um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 byggja á þeirri forsendu sbr. 1. gr. laganna að þeir einir eigi rétt á atvinnuleysisbótum sem eru án atvinnu enda séu þeir í atvinnuleit og fullfærir til vinnu.

Í 15. gr. laga um atvinnuleysistryggingar segir að sá sem reynir að afla sér bóta með því að gefa rangar eða villandi upplýsingar eða leyna upplýsingum um hagi sína missir rétt til bóta.  Einnig segir að fyrsta brot varði missi bóta í 2-6 mánuði en ítrekað brot varði missi bóta í 1-2 ár. 

Í 2. mgr. 27. gr. laganna segir orðrétt:  Nú hefur maður aflað sér bóta með því að gefa rangar eða villandi upplýsingar eða leyna upplýsingum um hagi sína og skal hann þá til viðbótar missi bóta skv. 15. gr. endurkrafinn um allt að tvöfaldri þeirri bótafjárhæð sem þannig var aflað.

Í 14. gr. reglugerðar nr. 545/1997 um greiðslu atvinnuleysisbóta segir:  Nú á Atvinnuleysistryggingasjóður útistandandi kröfu samkvæmt 27. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og er úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta þá heimilt að nota þá kröfu til skuldajöfnunar á móti atvinnuleysisbótum að því tilskildu að umsækjandi uppfylli skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar um bótarétt.  Skulu þá bætur fyrst greiddar umsækjanda þegar skuld hans við Atvinnuleysistryggingasjóð er að fullu greidd. 

 

2.

Í gögnum málsins kemur fram að kærandi þáði laun að fjárhæð kr. 162.150 hjá X ehf. í fyrir ágústmánuð 2002 jafnframt því sem hún fékk greiddar atvinnuleysisbætur að fjárhæð kr. 68.080.   Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að kærandi hafi leynt upplýsingum um hagi sína með því að þiggja atvinnuleysisbætur samhliða því sem hún var í fullri vinnu á Vínbarnum.  Er það niðurstaða úrskurðarnefndar að staðfesta beri ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta um að kæranda beri að endurgreiða ofgreiddar bætur fyrir ágústmánuð 2002 sem voru kr. 68.080, endurgreiðslan skal  þó vera einföld  en ekki tvöföld,  með bótalausri skráningu hjá svæðisvinnumiðlun sbr. 27. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 og 14. gr. reglugerðar um  greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997, auk þess sem bótaréttur hennar er felldur niður í 2 mánuði sbr. 15. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

 

 

Úrskurðarorð:

 

Ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 22. apríl 2003 um að A skuli endurgreiða ofgreiddar bætur að fjárhæð kr. 68.080 með bótalausri skráningu hjá svæðisvinnumiðlun, auk þess sem bótaréttur hennar er felldur niður í tvo mánuði, er staðfest.  Endurgreiðslan skal miðast við einfaldar ofgreiddar  bætur.

 

 

Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta

 

Friðjón Guðröðarson

formaður

Árni Benediktsson                                 Benedikt Davíðsson

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni