Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga
Nr. 44 - 2003

 

Úrskurður

 

Hinn 19. maí  2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 44/2003.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta fyrir Suðurland samþykkti á fundi sínum þann 14. apríl 2003 umsókn A um atvinnuleysisbætur.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 11. mars 2003 frá X, um starfslok hennar, var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

 

A kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi mótteknu dags. 25. apríl 2003.  Í bréfinu segist hún hafa hafið störf á X þann 25. febrúar s.l. fyrir tilstuðlan Svæðisvinnumiðlunar Suðurlands.  Þetta hafi verið 4 tíma vinna við þrif og þvotta.  Hún hafi verið klukkutíma í og úr vinnu.  Vegurinn hafi verið næstum ófær, hola við holu og sumar hvassar og djúpar.  Hún hafi verið á gömlum bíl.  Þann 11. mars hafi hún verið veik og var það í 5 daga.  Þann 15. mars hafi hún farið á Laugavatn, en á heimleiðinni hafi farið að ískra í afturhjóli bílsins.  Hún hafi komist á verkstæði og bíllinn hafi verið úrskurðaður ónýtur þar sem sprungur voru komnar í burðarvirki hans.  Sara segir að lokum í bréfi sínu að hún telji að það sé of langt til X heiman frá sér til þess að hægt sé að vinna aðeins 4 tíma.    Sá sem vinnur verkið hafi sama rétt og vinnuveitandi, stundum gengur það ekki upp.

 

 

 

 

3.

 

            Samkvæmt vinnuveitandavottorði dags. 11. mars 2003 frá X var A í 50% starfi tímabilið 25. febrúar til 11. mars. s.l. er hún sagði sjálf upp störfum. 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

2.

 

Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.   Lög um atvinnuleysistryggingar ganga út frá þeirri meginforsendu að landið allt sé eitt vinnusvæði.  Úthlutunarnefnd er heimilt að veita undanþágu frá þessu ef sérstakar heimilisaðstæður eða atvinnuhorfur umsækjanda nær heimabyggð gefur tilefni til.   Að mati úrskurðarnefndar telst ofangreind  fjarlægð milli heimilis og vinnustaðar ekki gild ástæða fyrir starflokum kæranda.   Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta fyrir Suðurland um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

            Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Suðurland frá 14. apríl 2003 um að A skuli sæta missi bótaréttar í 40 bótadaga, er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

Frið­jón Guðröðarson

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                             Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni