Niðurfelling á bótarétti í 40 bótadaga vegna höfnunar starfstilboðs.
Nr. 5 - 2003
Úrskurður
Hinn 29. janúar 2003 kvað úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 5/2003.
Málsatvik og kæruefni
1.
Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta á Norðurlandi eystra samþykkti á fundi sínum þann 10. desember 2002 umsókn A um atvinnuleysisbætur. Með vísan til upplýsinga á vottorði vinnuveitanda, dags. 2. nóvember 2002, um starfslok hennar hjá X var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna og/eða misst starf af ástæðum sem hann sjálfur á sök á skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga. Úthlutunarnefndin tók málið aftur fyrir á fundi sínum þann 19. desember 2002 og staðfesti fyrri ákvörðun sína.
2.
A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 3. janúar 2003. Í bréfi sínu gerir hún kröfu um að fá greiddar atvinnuleysisbætur þær þrjár vikur sem hún hafi verið skráð atvinnulaus þar sem hún hafi þess utan verið atvinnulaus í þrjá mánuði. Hún segist hafa sagt upp vinnu sinni vegna utanlandsferðar. Unnusti hennar hafi verið við nám erlendis og þau hafi verið í þrjá mánuði erlendis. Hún hafi skráð sig strax eftir að hún kom heim og fengið vinnu eftir þriggja vikna atvinnuleysi. Í bréfi, ódagsettu, sem hún sendi úthlutunarnefnd segist hún hafa sagt upp vinnu sinni vegna þriggja mánaða dvalar í T-landi. Kærasti hennar hafi verið þar í köfunarkennaranámi, námið hafi verið 4 námskeið og tekið 9 vikur í heild.
Niðurstaða
1.
Samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bótaréttar í 40 bótadaga ef umsækjandi um atvinnuleysisbætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna. Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglugerð nr. 545/1997 um greiðslu atvinnuleysisbóta en þar segir: Ef umsækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, séu starfslok tilkomin vegna einhverra eftirtalinna atvika:
a. Maki umsækjanda hafi farið til starfa í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja búferlum.
b. Uppsögn má rekja til þess að umsækjandi, að öðru leyti vinnufær, hefur af heilsufarsástæðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því tilskildu að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknisvottorði þessu til staðfestingar.
Kjósi úthlutunarnefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í öðrum tilvikum en að ofan greinir, skal hún tiltaka sérstaklega í ákvörðun sinni þau atvik og sjónarmið sem ákvörðun byggist á.
2.
Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast þær ástæður sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997. Samkvæmt a-lið 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997 er áskilið að um búferlaflutninga hafi verið að ræða vegna starfs eða náms maka. Níu vikna nám erlendis uppfyllir ekki þessi skilyrði. Hvað varðar þá fullyrðingu að kærandi hafi verið atvinnulaus að auki í þrjá mánuði þá er bótaréttur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar háður því að einstaklingur sé á vinnumarkaði og í atvinnuleit. Þann tíma sem kærandi dvaldi erlendis uppfyllti hún ekki þessi skilyrði. Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta á Norðurlandi eystra um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta á Norðurlandi eystra frá 10. desember 2002, um að A skuli sæta missi bótaréttar í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils, er staðfestur.
Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta
Friðjón Guðröðarson
formaður
Árni Benediktsson Benedikt Davíðsson
Til baka