Ákvörðun um að greiðslur atvinnuleysisbóta hefjist fyrst að loknu óteknu áunnu sumarfríi felld úr gildi.
Nr. 71 - 2003

 

 

 

 

Úrskurður

 

Hinn 22. ágúst 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 71/2003.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

 

1.

Á fundi sínum þann 28. júlí 2003 ákvað úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið að samþykkja umsókn A um atvinnuleysisbætur.   Með vísan til þess að hún ætti 24 daga ótekið orlof við starfslok og að ekki hafi komið fram í umsókn hennar hvenær hún ætlaði í sumarfrí, ákvað úthlutunarnefndin að greiðslur atvinnuleysisbóta hæfust fyrst að loknum 24 skráningardögum hjá svæðisvinnumiðlun.

 

2.

A kærði ákvörðun úthlutunarnefndar með bréfi dags. 7. ágúst 2003.  Í bréfi sínu segist hún vera ósátt við þennan úrskurð því hún hafi ákveðið að taka sumarfrí tímabilið 20. ágúst til 15. september.  Ástæðan sé að yngri sonur hennar er að byrja í skóla á þeim tíma.  Þegar hún hafi fyllt út umsóknina um atvinnuleysisbætur hafi hún ekki tekið eftir því að hún ætti að taka fram hvenær hún hygðist fara í sumarfrí. 

 

 

 

 

Niður­staða

 

1.

Í 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 er kveðið á um að launamenn og sjálfstætt starfandi einstaklingar, sem verða atvinnulausir, eigi rétt á bótum úr Atvinnuleysistryggingasjóði samkvæmt því sem fyrir er mælt í lögunum, enda séu þeir í atvinnuleit og fullfærir til vinnu.

Samkvæmt 2. gr. laga um atvinnuleysistryggingar eiga einstaklingar sem fullnægja eftirtöldum skilyrðum rétt á atvinnuleysisbótum:

1.      Eru orðir 16 ára að aldri en yngri en 70 ára.

2.      Eru búsettir hér á landi eða hafa fengið leyfi til atvinnuleitar í EES-landi.

3.      Hafa óbundna heimild til þess að ráða sig til vinnu hér á landi.

4.      Hafa á síðustu tólf mánuðum unnið samtals í a.m.k. 10 vikur miðað við fullt starf í tryggingagjaldsskyldri vinnu en hlutfallslega lengri tíma ef um hlutastarf hefur verið að ræða, sbr. þó 17. gr. Norðurlandasamnings um almannatryggingar, sbr. lög nr. 46/1993. 

5.      Hafa í upphafi bótatímabils verið skráðir sem atvinnulausir í þrjá daga samfellt.

6.      Eru reiðubúnir að ráða sig til allra almennra starfa.

 

 2.

Samkvæmt 18. gr. reglugerðar nr. 545/1997 um greiðslu atvinnuleysisbóta á umsækjandi um atvinnuleysisbætur sem á kröfu um laun í uppsagnarfresti á hendur vinnuveitanda sem ekki hefur verið úrskurðarður gjaldþrota ekki rétt á atvinuleysisbótum fyrr en uppsagnarfrestur er liðinn.

 

 3.

            Þá almennu viðmiðun ber að hafa að leiðarljósi að umsækjandi um atvinnuleysisbætur á ekki rétt á atvinnuleysisbótum fyrir sama tímabil og hann fær greidd laun frá vinnuveitanda sínum, s.s. vegna ótekins orlofs launa við starfslok eða launa í uppsagnarfresti.  Á umsækjandi ekki rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en það tímabil sem greiðslan er fyrir er liðin.  Umsækjandi um atvinnuleysisbætur getur þó ákveðið að taka orlof sitt síðar á orlofstímanum.  Hann getur því valið á milli þess að greiðslu atvinnuleysisbóta sé frestað strax í jafnmarga daga og sem nemur fjölda orlofsdaganna eða að tiltaka hvenær á orlofstímabilinu hann hyggst fara í frí.

 

4.

Fyrir liggur í máli þessu að kærandi hafði ákveðið að fara í orlof tímabilið 20. ágúst til 15. september.  Þá mun yngri sonur hennar hefja skólanám og vilji hún þess vegna vera í fríi þennan tíma.  Það er mat úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar eigi kærandi rétt á að ákveða hvenær á orlofstímanum hann tekur út sinn orlofsrétt og að hann eigi rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta til þess tíma að uppfylltum öðrum skilyrðum laga um atvinnuleysistryggingar.   Að teknu tilliti til þessa og til málsástæðna allra er það niðurstaða úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta að fella beri ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta um að bótaréttur kæranda hefjist fyrst að liðnum 24 skráningardögum hjá vinnumiðlun sem samsvara óteknu orlofi kæranda úr gildi.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 28. júlí 2003 um að greiðsla atvinnuleysisbóta til A skuli fyrst hefjast að loknu áunnu óteknu orlofi, er felld úr gildi

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Þuríður Jónsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni