Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga felld úr gildi. Starfslok vegna búferlaflutninga milli landshluta.
Nr. 72 - 2003
Úrskurður
Hinn 22. ágúst 2003 kvað úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta upp svohljóðandi úrskurð í máli nr. 72/2003.
Málsatvik og kæruefni
1.
Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið samþykkti á fundi sínum þann 28. júlí 2003 umsókn A um atvinnuleysisbætur. Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 23. júlí 2003 um starfslok hennar hjá X hf. var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.
2.
A kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 8. ágúst 2003. Í bréfinu segist hún hafa verið að flytja búferlum milli landshluta og hafi því ekki getað stundað fyrri vinnu vegna fjarlægðar. Ástæða flutninganna sé fjölskyldumál sem tengist ekki á nokkurn hátt fyrri vinnu hennar.
3.
Í gögnum málsins liggur fyrir vinnuveitandavottorð dags. 23. júlí 2003 frá X hf. á Djúpavogi. Í vottorðinu kemur fram að A hafi verið í 100% starfi hjá fyrirtækinu tímabilið 21. maí 2001 til 21. júní 2003. Ástæða starfsloka er sögð búferlaflutningur í annan landshluta. Samkvæmt upplýsingum úr þjóðskrá kemur fram að A er nú með lögheimili í Hafnarfirði og að hún hafi flutt þangað frá Djúpavogi í byrjun júlí s.l.
Niðurstaða
1.
Samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bótaréttar í 40 bótadaga ef umsækjandi um atvinnuleysisbætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna. Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglugerð nr. 545/1997 um greiðslu atvinnuleysisbóta en þar segir: Ef umsækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar, séu starfslok tilkomin vegna einhverra eftirtalinna atvika:
a. Maki umsækjanda hafi farið til starfa í öðrum landshluta og fjölskyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja búferlum.
b. Uppsögn má rekja til þess að umsækjandi, að öðru leyti vinnufær, hefur af heilsufarsástæðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því tilskildu að vinnuveitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ástæður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknisvottorði þessu til staðfestingar.
Kjósi úthlutunarnefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í öðrum tilvikum en að ofan greinir, skal hún tiltaka sérstaklega í ákvörðun sinni þau atvik og sjónarmið sem ákvörðun byggist á.
2.
Atvik í einstökum málum geta verið með þeim hætti að launþega hafi verið rétt eftir atvikum að segja starfi sínu lausu án þess að það valdi missi bótaréttar skv. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta fellur búferlaflutningur milli landshluta undir slík atvik. Fram hefur komið að kærandi sagði starfi sínu lausu vegna þess að hún var að flytja búferlum með fjölskyldu sinni á milli landshluta eða frá Djúpuvík til höfuðborgarsvæðisins. Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 felld úr gildi.
Úrskurðarorð:
Ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysisbóta nr. 1 fyrir höfuðborgarsvæðið frá 28. júlí 2003 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er felld úr gildi.
Úrskurðarnefnd atvinnuleysisbóta
Þuríður Jónsdóttir
formaður
Árni Benediktsson Benedikt Davíðsson
Til baka