Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga staðfest vegna höfnunar vinnutilboðs.
Nr. 74 - 2003

 

Úrskurður

 

Hinn 22. ágúst 2003 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr. 74/2003.

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunarnefnd atvinnuleysisbóta fyrir Vestfirði ákvað á fundi sínum þann 24. júní 2003 að A skyldi sæta niðurfellingu bótaréttar í 40 bótadaga með vísan í 13. gr. sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysisbætur nr. 12/1997.  Ákvörðunin var tekin á grundvelli þess að A hefði hafnað atvinnutilboði frá X.

 

2.

 

A kærði framangreinda ákvörðun til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 29. júlí 2003. Í bréfi sínu segist hann hafa hafnað atvinnutilboði frá X á þeim forsendum að vinnustaðurinn sé í 25 km fjarlægð heiman frá honum.  Þar sem hann hafi ekki bifreið til umráða hafi hann spurt um húsnæði og/eða fæði og fengið þau svör að hvorugt væri í boði.  Því hafi hann ekki talið sér fært að taka þessu atvinnutilboði. 

 

3.

 

            Í gögnum málsins liggur fyrir atvinnutilboð dags. 18. júní 2003 frá X ehf. um almenn verkamannastörf.  Í bréfi A til svæðisvinnumiðlunar dags. 24. júní segist hann ekki hafa séð sér fært að taka vinnunni hjá X þar sem hann átti hvorki kost á fæði né húsnæði á staðnum.  Í atvinnuumsókn hjá svæðisvinnumiðlun dags.  14. apríl 2003 segist hann hafa bifreið til umráða.   

 

 

4.

 

Í bréfi svæðisvinnumiðlunar til úrskurðarnefndar dags. 12. ágúst s.l. kemur fram að A hafi verið synjað um atvinnuleysisbætur fyrr í vetur þar sem hann var skráður í framhaldsskóla.  Eftir að staðfesting kom frá skólanum um námslok hafi hann sótt um aftur og var umsókn hans þá samþykkt.  A hafi skrifað á umsókn sína að hann hefði bifreið til umráða, en hann er búsettur í sveit.   Honum hafi verið boðin vinna á T sem sé skammt frá B eða 19 km, enda hafi ekki verið líkur á að hann fengi sumarvinnu á B þar sem búið var að loka einu stærsta fyrirtæki staðarins, Z.  Einnig voru rekstrarerfiðleikar í hinu stóra útgerðarfyrirtæki staðarins og væri það fyrirtæki nú í greiðslustöðvun.  A hafi verið upplýstur um að vinnuhöfnun gæti þýtt niðurfellingu bóta í 40 bótadaga en hann hafi engu að síður hafnað starfinu á þeim forsendum að ekki væri fæði og húsnæði á staðnum.  Tekið er fram í bréfinu að fyrirtæki á svæðinu hafi almennt ekki mötuneyti á sínum snærum.  Einnig er tekið fram að svæðisvinnumiðlun hafi ítrekað borist ábendingar um að A væri í starfi hjá föður sínum að H.  A hafi neitað þessu, en nú hafi hann tilkynnt að hann sé kominn í starf hjá föður sínum frá og með verslunarmannahelgi.

 

 

Niður­staða

 

1.

Réttur til atvinnuleysisbóta samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 er hvort tveggja háður því að bótaþegi sé atvinnulaus og í atvinnuleit en í síðara skilyrðinu felst að hann geti tekið tilboði um vinnu fyrirvaralaust þegar hún býðst, sbr. 6. tölul. 2. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Skilyrði laga um atvinnuleysistryggingar um virka atvinnuleit bótaþega kemur einnig fram í 1. gr. reglugerðar um greiðslu atvinnuleysisbóta nr. 545/1997 en þar segir orðrétt:  Til að eiga rétt á atvinnuleysisbótum þarf umsækjandi í atvinnuleit samkvæmt 1. gr. laga um atvinnuleysistryggingar að uppfylla eftirfarandi skilyrði:

a.         Að vera reiðubúinn til að ráða sig til allra almennra starfa, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör í samræmi við 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda, nr. 55/1980.

b.         Að vera fullfær til vinnu.

c.         Að fylgja starfsleitaráætlun sem gerð hefur verið á vegum svæðisvinnumiðlunar, sbr. 15. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir, eða skrá sig vikulega hjá svæðisvinnumiðlun/skráningaraðila.

 

            Samkvæmt 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar veldur það missi bótaréttar að neita starfi sem býðst fyrir milligöngu svæðisvinnumiðlunar eða á annan sannanlegan hátt, enda sé vinnan heimil að lögum og laun fyrir hana og starfskjör öll í samræmi við 1. gr. laga um starfskjör launafólks og skyldutryggingu lífeyrisréttinda nr. 55/1980.  Samkvæmt 5. mgr. 13. gr. gilda um missi bótaréttar samkvæmt greininni að öðru leyti ákvæði 4. tölul. 5. gr.  laganna.

Í 4. tölulið 5. gr. laganna segir, sbr. 1. mgr. að [...] einstaklingar eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum sem hafa sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna eða misst vinnu af ástæðum sem þeir sjálfir eiga sök á. Réttur til bóta samkvæmt þessum tölulið fellur niður í 40 bótadaga í fyrsta sinn og skerðist bótatímabil sem því nemur. Missi maður aftur rétt til bóta öðlast hann ekki bótarétt að nýju, nema hann sanni að hann hafi stundað vinnu í samfellt sex vikur eftir að hann missti bótaréttinn.

 

2.

 Það er hlutverk vinnumiðlunar að miðla til atvinnuleitanda, sem þiggja bætur samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar, störfum sem vinnuveitendur hafa tilkynnt að laus séu. Er gert ráð fyrir því að vinnumiðlun velji af atvinnuleysisskrá þá einstaklinga sem hún telur koma til greina í slík störf. Ákvörðun vinnumiðlunar um að afhenda bótaþega tiltekið atvinnutilboð felur annars vegar í sér það mat vinnumiðlunar að hann teljist hæfur miðað við fyrirliggjandi upplýsingar til að taka starfinu og hins vegar kvöð á bótaþega að sinna því tilboði án frekari fyrirvara.

 

 

4.

Kærandi hafði óskað eftir sumarstarfi og lýst því yfir í atvinnuumsókn sinni hjá svæðisvinnumiðlun að hann hefði bifreið til umráða.  Starf það sem honum bauðst var innan sama atvinnusvæðis eða aðeins 25 km frá heimili hans.  Á B sem er nær heimili hans eru atvinnuhorfur ekki góðar, annað stærsta fyrirtækið lokað og hitt komið í greiðslustöðvun. Þegar á allt þetta er litið er það mat úrskurðarnefndar að ástæður þær er kærandi ber fyrir sig geti ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar.  Ákvörðun úrhlutunarnefndar um niðurfellingu bótaréttar kæranda í 40 bótadaga er því staðfest.

 

 

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta fyrir Vestfirði frá 24. júní 2003 um niðurfellingu bótaréttar A í 40 bótadaga skv. 13. gr. sbr. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Þuríður Jónsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni