Niðurfelling bótaréttar í 40 bótadaga. Segir upp starfi vegna skorts á barnagæslu á dagvinnutíma. Staðfest.
Nr. 17 - 2004

 

 

Úrskurður

 

Hinn 27. febrúar 2004 kvað úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta upp svohljóðandi úr­skurð í máli nr.17/2004.

 

 

Máls­at­vik og kæru­efni

 

1.

 

Úthlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta á Norðurlandi eystra samþykkti á fundi sínum þann 3. febrúar 2004 umsókn X um atvinnuleysisbætur frá 12. janúar 2004.  Með vísan til upplýsinga á vinnuveitandavottorði dags. 12. janúar 2004 um starfslok hennar hjá leikskólanum A var réttur hennar til atvinnuleysisbóta hins vegar felldur niður í 40 bótadaga í upphafi bótatímabils á grundvelli 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, sem kveður á um það að hafi umsækjandi um atvinnuleysisbætur sagt starfi sínu lausu án gildra ástæðna, eða misst vinnu sem þeir eiga sjálfir sök á skuli það varða missi bótaréttar í 40 bótadaga.   

 

2.

 

X kærði framangreinda ákvörðun úthlutunarnefndar til úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta með bréfi dags. 18. febrúar 2004.  Í bréfinu segist hún óska eftir að mál hennar verði tekið upp aftur.  Henni hafi verið sagt upp störfum í janúar 2004 er hún kom úr fæðingarorlofi.  Vinnutími hennar var frá kl. 10:30 til 17:00.  Hún gat ekki unnið á þessum vinnutíma þá og því var henni sagt upp störfum.  Þrátt fyrir það hafi hún sótt um vinnu á sama stað en á öðrum tíma og ekki fengið.  Á þessum tíma sem hún gat fengið vinnu, þ.e. frá kl. 10:30 til 17:00 gat hún ekki fengið neina dagmömmu.  Hún sé með einn strák sem er eins ár.  Það voru einungis tvær dagmömmur með börn til 17:00 og þær höfðu ekki laus pláss.  Flestar dagmæður taka einungis börn í gæslu annað hvort hálfan daginn eða allan daginn, en tíminn frá kl. 10:30 til 17:00 hentar þeim ekki og fann hún ekki neina dagmömmu sem var tilbúin að taka drenginn í gæslu á þeim tíma.  Því var henni sagt upp störfum vegna þess að hún gat ekki unnið á þeim tíma. 

 

3.

 

            Fram kemur að A var í fæðingarorlofi tímabilið  janúar til desember 2003.  Í málinu liggur fyrir vinnuveitandavottorð frá leikskólanum A dags. 12. janúar 2004 þar sem fram kemur að ástæður starfsloka séu að ekki sé laus staða á þeim tíma sem X geti unnið á.  Í bréfi til X frá leikskólastjóra A segir að þar sem hún hafi ekki tækifæri til að vinna á þeim tíma sem hún hafi gert áður en hún fór í fæðingarorlof og ekki sé laus staða á öðrum tíma verði ekki séð að hægt sé að nota starfskrafta hennar eins og er.  Einnig segir að henni sé velkomið að sækja um stöðu á þeim tíma sem henni henti og að samband verði haft við hana ef einhver staða losni.

 

 

Niður­staða

 

1.

 

Sam­kvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar nr. 12/1997, veldur það missi bóta­réttar í 40 bóta­daga ef um­sækjandi um at­vinnu­leysis­bætur hefur sagt lausu því starfi sem hann hafði án gildra ástæðna.  Ákvæði þetta er skýrt nánar í 7. gr. reglu­gerð nr. 545/1997 um greiðslu at­vinnu­leysis­bóta en þar segir:  Ef um­sækjandi um bætur hefur sagt starfi sínu lausu er út­hlutunar­nefnd at­vinnu­leysis­bóta heimilt að ákveða að hann skuli ekki missa rétt til bóta, sbr. 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar, séu starfs­lok til­komin vegna einhverra eftir­talinna at­vika:

a.         Maki um­sækjanda hafi farið til starfa í öðrum lands­hluta og fjöl­skyldan hefur af þeim sökum þurft að flytja bú­ferlum.

b.         Upp­sögn má rekja til þess að um­sækjandi, að öðru leyti vinnu­fær, hefur af heilsu­fars­á­st­æðum sagt sig frá þeirri vinnu sem hann var í, að því til­skildu að vinnu­veitanda hans hafi mátt vera kunnugt um þessar ást­æður áður en hann lét af störfum. Heimilt er að óska eftir læknis­vott­orði þessu til stað­festingar.

Kjósi út­hlutunar­nefnd að beita heimild 4. tölul. 5. gr. laga um at­vinnu­leysis­tryggingar í öðrum til­vikum en að ofan greinir, skal hún til­taka sér­stak­lega í ákvörðun sinni þau at­vik og sjónar­mið sem ákvörðun byggist á.

 

 

 

 

2.

 

Ekki verður talið að skortur á dagheimilisplássi sé gild ástæða fyrir starfslokum ef um er að ræða vinnu á venjulegum dagvinnutíma.  Venjulegur dagvinnutími telst vera á tímabilinu frá kl. 08:00 til 17:00 eða 09:00 til 18:00, og verða bótaþegar að vera reiðubúinir að taka vinnu sem fellur innan þessarra tímamarka.  Vinnutími kæranda átti að vera innan þessara tímamarka eða frá kl. 10:30 til kl. 17:00 og bar henni því skylda til að taka því starfi sem um var að ræða samkvæmt ofansögðu.  Að mati úrskurðarnefndar atvinnuleysisbóta teljast ástæður þær sem kærandi gefur fyrir starfslokum sínum ekki gildar í skilningi 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sbr. 7. gr. reglugerðar nr. 545/1997.  Með vísan til framanritaðs er ákvörðun úthlutunarnefndar atvinnuleysis­bóta fyrir Norðurland eystra um niðurfellingu bóta­réttar kæranda í 40 bóta­daga samkvæmt 4. tölul. 5. gr. laga um atvinnuleysistryggingar nr. 12/1997 staðfest.

 

Úr­skurðar­orð:

 

Ákvörðun út­hlutunar­nefndar at­vinnu­leysis­bóta á Norðurlandi eystra frá 3. febrúar 2004 um niðurfellingu bótaréttar X í 40 bótadaga skv. 4. tölul. 5. gr. laga nr. 12/1997 um atvinnuleysisbætur, er staðfest.

 

Úr­skurð­ar­n­efnd at­vinnu­leysis­bóta

 

 

Linda Björk Bentsdóttir

for­maður

 

Árni Benedikts­son                                Benedikt Davíðs­son

 

 

 

Til baka

Var efnið hjálplegt?

Þakka þér fyrir þitt álit.
Það væri gagnlegt að vita meira um hvað þér finnst.

Hvað er helst að?

Hunang vefstofa Merki Hunang vefstofu

Þessi vefur notar vefkökur (e. cookies).

Sjá nánar í persónuverndarstefnu Vinnumálastofnunar.

Hæ, Vinný hér! Hvernig get ég aðstoðað?
Vinný snjallmenni